Starfsemi og skipulag

Hlutverk Rannís

Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensk samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu.

Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensk samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu. Rannís styður þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum, ásamt því að greina og kynna áhrif rannsókna, menntunar og menningu á þjóðarhag og þjónusta undirbúning vísinda- og tæknistefnu.

Rannís hefur umsjón með helstu samkeppnissjóðum á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og menningar á Íslandi, auk samstarfáætlana ESB og norrænna áætlana sem veita styrki til samstarfsverkefna, náms og þjálfunar. Á meðal sjóðanna eru Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður, sem eru tveir stærstu samkeppnissjóðir hér á landi, Listamannalaun, Lofslagssjóður og Jafnréttissjóður Íslands sem eru dæmi um smærri sjóði og Horizon Europe og Erasmus+ sem eru stærstu ESB áætlanirnar. Samskiptanetið er stórt, en skólar, stofnanir, einstaklingar, samtök og fyrirtæki auk stjórnsýslunnar tilheyra viðskiptavinahópi Rannís.

Yfirlit yfir helstu samkeppnissjóði og sérverkefni sem Rannís hefur umsjón með:

Innlendir sjóðir

  • Barnamenningarsjóður Íslands 
  • Bókasafnssjóður
  • Doktorsnemasjóður umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins
  • Hljóðritasjóður 
  • Innviðasjóður 
  • Íslenskukennsla fyrir útlendinga 
  • Íþróttasjóður 
  • Jafnréttissjóður Íslands 
  • Listamannalaun 
  • Loftslagssjóður 
  • Markáætlun í tungu og tækni  og um samfélagslegar áskoranir
  • Menntarannsóknasjóður
  • Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla 
  • Nýsköpunarsjóður námsmanna 
  • Rannsóknarsjóður Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar 
  • Rannsóknasjóður 
  • Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara – SEF 
  • Skattfrádráttur frá tekjum erlendra sérfræðinga 
  • Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna 
  • Sóknarstyrkir 
  • Sprotasjóður
  • Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna 
  • Stuðningur við útgáfu bóka á Íslandi 
  • Sviðslistasjóður 
  • Tónlistarsjóður 
  • Tækniþróunarsjóður 
  • Vinnustaðanámssjóður 
  • Þróunarsjóður námsgagna 
  • Æskulýðssjóður

Alþjóðastarf

  • Arctic Research and Studies – Norðurslóðafræði
  • CHANSE – Samvinna hug- og félagsvísinda í Evrópu
  • COST 
  • Creative Europe 
  • Digital Europe
  • Enterprise Europe Network
  • Erasmus+  
  • Sérverkefni Erasmus+ 
    - EAAL 
    - ECVET 
    - EPALE 
    - eTwinning 
    - Eurodesk 
    - Euroguidance 
    - Higher Education Reform 
    - Kynningar á möguleikum fyrir ungt fólk  
  • European Solidarity Corps 
  • Eurostars  
  • Euraxess 
  • Evrópska tungumálamerkið 
  • Horizon Europe
  • Landstenglaverkefni Horizon Europe
  • BioHorizon 
  • C-Energy  
  • COSMOS 
  • Ideal-ist 
  • NCP CaRe 
  • NET4MOBILITY 
  • Net4Society 
  • RICH 
  • SEREN 
  • SiS.net  
  • Life áætlun
  • ERA-Net 
  • BlueBioeconomy  
  • GEOTHERMICA   
  • M-ERA.NET 2 
  • HERA 
  • Norrænt samstarf 
  • Nordplus 
  • NordForsk  
  • NOS-HS 
  • NOS-M 
  • NOS-N 
  • Jules Verne 
  • Rannsóknasetur Margrétar II Danadrottningar og frú Vigdísar Finnbogadóttur um haf, loftslag og samfélag
  • Tungumálamiðstöðin í Graz 
  • Uppbyggingarsjóður EES 

Skipurit Rannís

Fjögur svið Rannís

Starfsemi Rannís skiptist í tvö fagsvið; rannsókna- og nýsköpunarsvið og mennta- og menningarsvið. Rekstrarsvið og greiningar- og hugbúnaðarsvið ganga þvert á fagsviðin og styðja við starfsemi þeirra.

Sameiginlegt markmið sviðanna er að efla samstarf stjórnvalda og hagsmunaaðila við undirbúning og framkvæmd opinberrar vísinda- og tæknistefnu og styðja við rannsóknir og nýsköpun, menntun, menningu og þróun mannauðs.

Vísinda- og tækniráð

Vísinda- og tækniráð hefur það hlutverk að efla vísindarannsóknir, vísindamenntun og tækniþróun í landinu í því skyni að treysta stoðir íslenskrar menningar og auka samkeppni atvinnulífsins.

Forsætisráðherra er formaður ráðsins en þar sitja einnig mennta- og menningarmálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ráðið markar stefnu stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum til þriggja ára í senn. Umfjöllun ráðsins á hvoru sviði um sig er undirbúin af starfsnefndum ráðsins, vísindanefnd og tækninefnd. Vísinda- og tækniráð starfar skv. lögum nr. 2/2003.

Vísinda- og tækninefndir hittust fimm sinnum á sameiginlegum fundum og vísindanefnd fundaði tvisvar sinnum og tækninefnd einu sinni. Vísinda- og tækniráð fundaði einu sinni á árinu sökum heimsfaraldurs. Árið 2021 var síðasta starfsár þessa ráðs og mun nýtt ráð verða skipað til þriggja ára á næsta ári.

Rannís í hnotskurn

Lykiltölur starfseminnar árið 2021

0

innlendir sjóðir

0

erlendar samstarfsáætlanir og -net

0

umsóknir

0

Verkefnastyrkir

0

einstaklingar sem njóta góðs af starfinu

0

milljarða króna stuðningur

0

starfsmenn á fjórum sviðum

0

matsmanna og stjórnarmanna unnu í fagráðskerfinu