Útgáfu- og kynningarmál

Miðlun upplýsinga 

Rafræn miðlun upplýsinga skipar stórt hlutverk í samskipta- og kynningarstarfi Rannís. Einnig er prentað kynningarefni um starfsemi Rannís, sjóði og áætlanir en þó með tilliti til umhverfissjónarmiða og að endingartími kynningarefnis geti verið sem lengstur.

Gervigreindarmynd sem sýnir dal með veg og litríkum ljósum á vegi. í fjarska er þorp undir fjöllum og á himni tákn sem tengjast

Vefur Rannís

Vefur Rannís er grunnstoðin í samskiptamálum stofnunarinnar. Á vefnum er hægt að nálgast upplýsingar um starfsemi Rannís, auglýsingar um umsóknarfresti, úthlutunarfréttir, viðburði og kynningar og einnig allar upplýsingar um sjóði í umsýslu Rannís. Vefurinn var opnaður 3. apríl 2014 og hefur að mestu leyti haldist óbreyttur fyrir utan smá útlitsbreytingu árið 2021.

Eftir þarfagreiningarvinnu fyrir nýjan vef, umræðu í samráðshópi sem skipaður var starfsfólki Rannís og nokkra kynningarfundi með aðilum frá Stafrænt Ísland, var tekin ákvörðun um að nýr vefur færi undir vefsvæði Stafræns Íslands. Umsókn þess efnis var skilað inn og hún samþykkt í desember og drög að verkáætlun lögð fram. Stefnt er að því að innleiðingarferlið taki um sex mánuði og nýr vefur Rannís opni undir island.is haustið 2024.

Á vefsíðu Rannís geta notendur vefsins nálgast allar upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar og þá þjónustu sem hún veitir. Áhersla er lögð á að leit sé skilvirk og styðji hratt og örugglega við notandann. Hægt er að kalla fram upplýsingar á einfaldan og öruggan hátt um alla sjóði og verkefni í umsýslu Rannís, næstu umsóknarfresti og þá viðburði sem eru á döfinni.

Vefurinn er uppfærður daglega og á forsíðu eru reglulega settar inn nýjar fréttir og upplýsingar um verkefni, sjóði og umsóknarfresti. Vefurinn hentar til skoðunar í öllum tækjum, hvort sem um er að ræða tölvuskjá, spjaldtölvu eða snjallsíma. Vefurinn er því öflug gátt inn í starfsemi stofnunarinnar.

Á enska vef Rannís, er hægt að nálgast helstu upplýsingar um starfsemi Rannís sem og um verkefni og sjóði í umsýslu Rannís á ensku. Vefurinn er ekki bein speglun af íslenska vefnum, heldur er þetta ritstýrð útgáfa sem veitir aðeins lykilupplýsingar á ensku.

Mynd sem sýnir skjáskot af forsíðunni á vef Rannís

Á Rannís vefnum er hægt að nálgast allar upplýsingar um verkefni og þjónustu í umsýslu Rannís.

Það sem má helst nefna:

  • Rannís vefurinn var heimsóttur um 294.000 sinnum á árinu, af rúmlega 129.000 gestum. Alls var flett í gegnum rúmlega 713.000 síður.
  • febrúar voru flestar heimsóknir á Rannís vefinn; tæplega 20.000 talsins.
  • Síða Tækniþróunarsjóðs fékk flestar heimsóknir af sjóðasíðunum eða rúmlega 7.600. Fast á hæla hans kemur launasjóður listamanna með um 6.600 heimsóknir og svo Nýsköpunarsjóður námsmanna með um 5.700 heimsóknir.
  • Enski vefurinn fékk 30.700 heimsóknir á árinu frá tæplega 23.000 gestum.
  • Erasmus+ vefurinn var heimsóttur rúmlega 40.000 sinnum á árinu af rúmlega 24.000 gestum. Alls var flett í gegnum tæplega 90.000 síður á vef Erasmus+.
  • Frétt um úthlutun Rannsóknasjóðs 2023 var mest lesna frétt ársins á vef Rannís með um 3.300 heimsóknir.
  • Stærsti hluti þeirra sem heimsækja vef Rannís er á aldrinum 25-34 ára eða um 26%.
  • Yfir 42% umferðar fer í gegnum snjalltæki (síma eða spjaldtölvu).

Vefsvæði tengd sérverkefnum

Rannís heldur einnig utan um nokkur vefsvæði er tengjast sérverkefnum í umsjón stofnunarinnar.

Farabara.is er vefur sem veitir upplýsingar um námsmöguleika erlendis en á árinu var nýr vefur settur í loftið.

Landskrifstofa Erasmus+ heldur úti sér vefsvæði fyrir Erasmus+ áætlunina en þar eru veittar upplýsingar um áætlunina og verkefni tengd henni (þar á meðal European Solidarity Corps).

Á vefsvæði Vísindavöku er hægt að nálgast allar upplýsingar um viðburði sem tengjast Vísindavöku á Íslandi.

Rannís heldur einnig utan um Eurodesk síðuna sem veitir ungu fólki upplýsingar um ýmis tækifæri sem því býðst á erlendri grundu. Ennfremur þjónustar starfsfólk Rannís íslenskan hluta fjölmargra alþjóðlegra vefsvæða er tengjast fjölmörgum verkefnum í umsýslu Rannís.

Mynd sem sýnir skjáskot af forsíðunni á vef Erasmus plús

Á Erasmus+ vefnum er hægt að nálgast allar upplýsingar um áætlunina og verkefni tengd henni.

Mynd sem sýnir skjáskot af forsíðunni á vef Farabara.is

Upplýsingastofa um nám erlendis og Study in Iceland

Hlutverk upplýsingastofunnar er að veita leiðbeinandi ráðgjöf til þeirra sem hyggjast fara í nám erlendis og aðstoða fólk í gegnum síma, tölvupóst og fjarfundi. Upplýsingastofan heldur úti vefnum FaraBara en nýr og endurbættur vefur var settur í loftið í nóvember 2023. Í lok árs höfðu heimsóknir þegar náð 3000 og stefnir í að vefurinn muni nýtast betur en áður, enda er sá nýi mun aðgengilegri í snjallsíma en sá gamli. Upplýsingastofan heldur áfram góðu samstarfi við SÍNE (Samtök íslenskra námsmanna erlendis) og rétt fyrir jól var haldinn sameiginlegur viðburður þar sem ungu fólki var boðið að hlusta á reynslusögur íslenskra nemenda af námi erlendis og fá kynningu á Farabara.is og störfum upplýsingastofunnar. Upplýsingastofan tók einnig þátt í kynningum í menntaskólum og háskólum ásamt Eurodesk og æskulýðsteymi landskrifstofu Erasmus+. Náðu þessar kynningar til yfir 1500 ungmenna vítt og breitt um landið.

Study in Iceland vefurinn er yfirfarinn af starfsfólki upplýsingastofunnar en það er Íslandsstofa sem heldur vefnum úti. Einstaka sinnum berast fyrirspurnir um nám á Íslandi sem starfsfólk upplýsingastofunnar svarar einnig.

Kynningar

Framhaldsskólar og háskólar hafa verið aðal markhópar kynningastarfs á tækifærum fyrir ungt fólk á aldrinum 13-30 ára þar sem er að finna ákveðna breidd og fjölbreytileika. Árið 2023 náðu kynningarnar til yfir 1500 ungmenna og fengu þau kynningu á tækifærum í námi, sjálfboðaliðastörfum, ungmennaskiptum og öðru sem stendur ungu fólki til boða í gegnum áætlanir og stoðverkefni Rannís (Erasmus+/ESC) sem og nám erlendis á eigin vegum. Samfélagsmiðlar hafa verið vel nýttir til að miðla þessum tækifærum og var aukinn kraftur lagður í samfélagsmiðla Erasmus+ og Eurodesk á Íslandi, en það er einmitt starfsfólk landskrifstofunnar og Eurodesk sem hefur annast þessar kynningar ásamt starfsfólki upplýsingastofu um nám erlendis.

Samfélagsmiðlar 

Samfélagsmiðlar voru nýttir í auknum mæli til þess að auka sýnileika, koma skilaboðum á framfæri, opna fyrir samskipti og styðja við virkni heimasíðunnar.

Stefna Rannís um viðveru og miðlun á samfélagsmiðlum er í reglulegri endurskoðun og á árinu var nokkrum aðgöngum lokað. Þar má nefna síðu Nýsköpunarsjóðs námsmanna, á Facebook og Instagram, og aðgang Vísindavöku á X(Twitter).

Facebook: Rannís heldur úti nokkrum Facebook síðum. Á Rannís síðuna er deilt fréttum af vef Rannís og helstu viðburðum á vegum stofnunarinnar. Einnig halda nokkur verkefni sem eru í umsýslu Rannís úti sér síðum, t.d. Erasmus+, Tækniþróunarsjóður, Europass, Epale Ísland, Creative Europe Desk á Íslandi, Vísindavaka, eTwinning á Íslandi og Eurodesk Ísland.

LinkedIn: Rannís er með LinkedIn síðu og deilir þar fréttum af vef Rannís og helstu viðburðum á vegum stofnunarinnar. Einnig eru Tækniþróunarsjóður og Enterprise Europe Network með sér síður á LinkedIn.

X: Rannís er með X (Twitter) reikning þar sem deilt er helstu fréttum og upplýsingum um viðburði. Nokkur verkefni í umsjón Rannís eiga einnig sér X (Twitter) reikninga, t.d. Erasmus+ menntun, Creative Europe, eTwinning, Nýsköpunarsjóður námsmanna, IASC, Tækniþróunarsjóður og Epale Ísland.

Instagram: Rannís er með reikning á Instagram. Þrjú verkefni í umsjón Rannís eru einnig með sér Instagram reikninga; Eurodesk Ísland, Erasmus+ og Vísindavaka.

Það sem má helst nefna:

  • Rannís heldur utan um átta X (Twitter) reikninga
  • Rannís heldur utan um níu Facebook reikninga
  • Fylgjendur Rannís reikningsins á Facebook eru 3.743
  • Fylgjendur Erasmus+ reikningsins á Facebook eru 5.326
  • Alls sáu 102.800 manns færslur á Facebook síðu Rannís árið 2023
  • Alls sáu 28.511 manns færslur á Instagram síðu Rannís sem er aukning um 1.100% frá árinu 2022
  • Færslur á Facebook síðu Rannís voru samtals 324 á árinu 2023

Myndbönd í kynningarstarfi

Rannís heldur úti Youtube rás þar sem birt eru ýmis myndbönd sem tengjast starfseminni. Erasmus+ verkefnið heldur úti sér Youtube rás þar sem kynntir eru þeir möguleikar sem standa til boða í áætluninni og tengdum verkefnum. Einnig má geta þess að fjölmörg myndbönd eru aðgengileg á Facebook reikningum stofnunarinnar sem og á vef.

Rannís lét útbúa kynningarmyndbönd um COST áætlun ESB og þrjú verkefni sem hafa hlotið styrk úr Horizon Europe, auk þess sem gert var myndband um Nýsköpunarsjóð námsmanna í tilefni af 30 ára afmæli sjóðsins á árinu.

Landskrifstofa Erasmus+ og stoðverkefni áætlunarinnar létu útbúa nokkur myndbönd á árinu. Þar á meðal voru fjögur árangursmyndbönd þátttökuaðila á borð við Dalvíkurskóla, Menntaskólann á Tröllaskaga, SEEDS og Fjölmennt. Sum myndbandanna voru hönnuð af grafískum hönnuði og voru ætluð til að vekja athygli á áætlununum og stoðverkefnunum á upplýsandi hátt en önnur styttri myndbönd voru einnig framleidd af starfsfólki Rannís fyrir samfélagsmiðlaauglýsingar.

Dæmi um myndbönd sem gerð voru á árinu og birt á Youtube:

Verum Græn með Erasmus+: Kynning á verkefnum eftirtalinna aðila:

Rafrænar útsendingar á póstlista 

Reglulega eru sendar út tilkynningar á póstlista Rannís. Á þá sem eru skráðir á póstlistann eru fyrst og fremst sendar út áminningar um áhugaverða viðburði en einnig upplýsingar um umsóknarfresti fram undan sem og auglýsingar um tilnefningar til verðlauna og fleira.

Hægt er að skrá sig á póstlistann á vefsíðu Rannís og voru áskrifendur árið 2023 tæplega 3.000. Við skráningu á póstlistann er hægt að velja um sjö ólíka markhópa eftir áhugasviðum áskrifenda.

Auðvelt er að skrá sig af póstlistanum og uppfæra upplýsingar til samræmis við persónuverndarlög.

Á árinu voru sendir út um 40 markpóstar á póstlistann á mismunandi markhópa, í rúmlega 52.000 útsendingum; boðsbréf á viðburði, áminningar um umsóknarfresti, fréttabréf og fleira.

Skráning á póstlista Rannís

Sýnileiki í fjölmiðlum 

Starfsemi Rannís var vel sýnileg í fjölmiðlum á árinu. Alls var fjallað um Rannís í rúmlega 580 fréttum/greinum. Þar af voru 312 í netmiðlum, 135 í prentmiðlum og tíu í sjónvarpi/útvarpi. Það sem helst vekur athygli fjölmiðla eru stórar úthlutanir til ákveðinna verkefna, svo sem úr Tækniþróunarsjóði, Rannsóknasjóði, Erasmus+, Barnamenningarsjóði Íslands, Jafnréttissjóði Íslands og til Listamannalauna. Í tengslum við það beinast þá sjónir fjölmiðla að framúrskarandi verkefnum sem unnið hafa styrki úr sjóðum sem heyra undir Rannís. Einnig vöktu athygli veiting viðurkenninga eins og Nýsköpunarverðlauna Íslands og Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands.

Prentgripir, prentað kynningarefni og skýrslur

Prentaðir voru endurskoðaðar útgáfur af kynningarbæklingum, meðal annars um tækifæri til náms og starfa erlendis. Þá voru prentuð spjöld í nafnspjaldastærð, t.d fyrir Rannís og Nýsköpunarsjóðs námsmanna með stuttum skilaboðum og QR kóða sem vísar inn á vef Rannís. Einnig voru reglulega birtar auglýsingar í blöðum þar sem vakin var athygli á viðburðum og auglýst eftir umsóknum í innlenda sjóði. Þá var unnið í endurnýjun á stærra kynningarefni á borð við gardínur og kynningarveggi, t.d. fyrir Rannís, Nýsköpunarsjóð námsmanna og Vísindavöku.