Útgáfu- og kynningarmál

Miðlun upplýsinga 

Rafræn miðlun upplýsinga gegnir stóru hlutverki í samskipta- og kynningarstarfi Rannís. Einnig er gefið út talsvert af prentuðu kynningarefni til að kynna starfsemi Rannís, sjóði og áætlanir.

Vefur Rannís

Vefur Rannís er grunnstoðin í samskiptamálum stofnunarinnar. Þar er hægt að nálgast upplýsingar um starfsemi Rannís, auglýsingar um umsóknarfresti, úthlutunarfréttir, viðburði, kynningar og einnig allar upplýsingar um sjóði í umsýslu Rannís. Vefurinn var opnaður þann 3. apríl 2014 og hefur að mestu leyti haldist óbreyttur fyrir utan smá útlitsbreytingu árið 2021.

Á árinu 2022 hóf vefstjóri ásamt þverfaglegum hópi starfsmanna Rannís vinnu við kröfulýsingu fyrir vinnslu á nýjum vef. Vinnu við hönnun á nýjum vef verður fram haldið árið 2023.

Á vefsíðu Rannís geta notendur nálgast allar upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar og þá þjónustu sem hún veitir. Áhersla er lögð á að leit sé skilvirk og styðji hratt og örugglega við notandann. Hægt er að kalla fram upplýsingar á einfaldan og öruggan hátt um alla sjóði og verkefni í umsýslu Rannís, næstu umsóknarfresti og þá viðburði sem eru á döfinni.

Vefurinn er uppfærður daglega og á forsíðu eru reglulega settar inn nýjar fréttir og upplýsingar um verkefni, sjóði og umsóknarfresti. Vefurinn hentar til skoðunar í öllum tækjum, hvort sem um er að ræða tölvuskjá, spjaldtölvu eða snjallsíma. Hann er því öflug gátt inn í starfsemi stofnunarinnar.

Á enska vef Rannís, er hægt að nálgast helstu upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar sem og verkefni og sjóði í umsýslu Rannís á ensku. Vefurinn er ekki bein speglun af íslenska vefnum, heldur er þetta ritstýrð útgáfa sem veitir aðeins lykilupplýsingar á ensku.

Á Rannís vefnum er hægt að nálgast allar upplýsingar um verkefni og þjónustu í umsýslu Rannís.

Það sem má helst nefna:

  • Rannís vefurinn var heimsóttur um 290.000 sinnum á árinu, af rúmlega 138.000 gestum. Alls var flett í gegnum rúmlega 735.100 síður
  • Í janúar voru flestar heimsóknir á Rannís vefinn; tæplega 28.000 talsins
  • Síða Tækniþróunarsjóðs fékk flestar heimsóknir af sjóðasíðunum eða rúmlega 10.700. Fast á hæla hans koma Starfslaun listamanna með 10.200 heimsóknir og Nýsköpunarsjóður námsmanna með um 9.100 heimsóknir
  • Enski vefurinn fékk 35.100 heimsóknir á árinu frá 24.000 gestum
  • Erasmus+ vefurinn var heimsóttur rúmlega 41.000 sinnum á árinu 2022 af tæplega 26.000 gestum. Alls var flett í gegnum rúmlega 113.000 síður sem er rúmlega 5% aukning frá síðasta ári
  • Frétt um úthlutun listamannalauna 2022 var mest lesna frétt ársins á vef Rannís með rúmlega 16.000 heimsóknir
  • Stærsti hluti þeirra sem heimsækja vef Rannís er á aldrinum 25-34 ára eða rúmlega 25%
  • Yfir 41% umferðar fer í gegnum snjalltæki (síma eða spjaldtölvu)

Vefsvæði tengd sérverkefnum

Rannís heldur einnig utan um nokkur vefsvæði er tengjast sérverkefnum í umsjón stofnunarinnar. Farabara, er vefur sem veitir upplýsingar um námsmöguleika erlendis. Landskrifstofa Erasmus+ heldur úti sér vefsvæði fyrir Erasmus+ áætlunina, en þar eru veittar upplýsingar um áætlunina og verkefni tengd henni (þ.á.m. European Solidarity Corps). Á vefsvæði Vísindavöku er hægt að nálgast allar upplýsingar sem tengjast Vísindavöku á Íslandi. Rannís heldur utan um Eurodesk síðuna sem veitir ungu fólki upplýsingar um ýmis tækifæri sem þeim bjóðast á erlendri grundu. Ennfremur þjónustar starfsfólk Rannís íslenskan hluta fjölmargra alþjóðlegra vefsvæða er tengjast verkefnum í umsýslu Rannís.

Á Erasmus+ vefnum er hægt að nálgast allar upplýsingar um áætlunina og verkefni tengd henni.

Upplýsingastofa um nám erlendis og Study in Iceland

Upplýsingastofan um nám erlendis veitir upplýsingar um nám erlendis og aðstoðar fólk í gegnum síma, tölvupóst og fjarfundi. Upplýsingastofan heldur úti vefnum FaraBara.is sem veitir greinargóðar og ítarlegar upplýsingar um allt sem viðkemur námi erlendis. Árið 2022 var vefurinn heimsóttur 28.912 sinnum sem er aukning frá árinu áður, þegar heimsóknir voru 27.900. Greinilegt er að áhugi á námi erlendis heldur áfram að aukast eftir Covid-19. Á árinu var unnið í nýjum og uppfærðum vef Farabara.is, en vegna tafa í forritun er áætlað að opna nýja vefinn á fyrri hluta árs 2023. Gert er ráð fyrir að nýi vefurinn verði enn aðgengilegri þar sem sérstaklega verður hugað að virkni í snjalltækjum. Upplýsingastofan heldur áfram samstarfi við SÍNE (Samtök íslenskra námsmanna erlendis) og tók einnig þátt í kynningum í menntaskólum og háskólum ásamt Eurodesk og Erasmus+ teyminu. Náðu þessar kynningar til yfir 1000 ungmenna vítt og breitt um landið.

Study in Iceland vefurinn er yfirfarinn af starfsfólki upplýsingastofunnar en það er Íslandsstofa sem heldur vefnum úti. Einstaka sinnum berast fyrirspurnir um nám á Íslandi sem starfsfólk upplýsingastofunnar svarar einnig.

Kynningar í skólum

Framhaldsskóla- og háskólanemar hafa verið aðal markhópur kynningastarfs á tækifærum fyrir ungt fólk á aldrinum 13-30 ára þar sem er að finna ákveðna breidd og fjölbreytileika. Kynningar fóru á flug á árinu og voru þær haldnar ýmist á staðnum eða rafrænar, eftir ósk hvers skóla. Meðal annars var farið í kynningarferð á Vesturland og Fjölbrautaskóli Snæfellinga heimsóttur. Árið 2022 náðu kynningarnar til yfir 1000 ungmenna og fengu þau kynningu á tækifærum í námi, sjálfboðaliðastörfum, ungmennaskiptum og öðru sem stendur ungu fólki til boða í gegnum áætlanir og stoðverkefni Rannís (Erasmus+/ESC). Samfélagsmiðlar hafa verið vel nýttir til að miðla þessum tækifærum og var aukinn kraftur lagður í samfélagsmiðla Erasmus+ og Eurodesk á Íslandi, en það er einmitt starfsfólk Landskrifstofunnar og Eurodesk sem hefur annast þessar kynningar.

Samfélagsmiðlar 

Samfélagsmiðlar voru nýttir í auknum mæli til þess að auka sýnileika, koma skilaboðum á framfæri, opna fyrir samskipti og styðja við virkni heimasíðunnar.

Facebook: Rannís heldur úti nokkrum Facebook síðum. Á Rannís síðuna er deilt fréttum af vef Rannís og helstu viðburðum á vegum stofnunarinnar. Einnig halda nokkur verkefni sem eru í umsýslu Rannís úti sér Facebook síðum, t.d. Erasmus+, Nýsköpunarsjóður námsmanna, Tækniþróunarsjóður, Europass, Epale Ísland, Creative Europe Desk á Íslandi, Vísindavaka, eTwinning á Íslandi og Eurodesk Ísland.

LinkedIn: Rannís er með LinkedIn síðu og deilir þar fréttum af vef Rannís og helstu viðburðum á vegum stofnunarinnar. Einnig eru Tækniþróunarsjóður og Enterprise Europe Network með sér síður á LinkedIn.

Twitter: Rannís heldur úti Twitter reikningi þar sem deilt er helstu fréttum og viðburðum. Nokkur verkefni í umsjón Rannís halda einnig úti sér Twitter reikningum, t.d. Erasmus+ menntun, Creative Europe, eTwinning, Nýsköpunarsjóður námsmanna, Vísindavaka, IASC, Tækniþróunarsjóður og Epale Ísland.

Instagram: Rannís er með reikning á Instagram. Þrjú verkefni í umsjón Rannís eru einnig með sér Instagram reikninga; Eurodesk Ísland, Erasmus+ og Vísindavaka.

Það sem má helst nefna:

  • Rannís heldur utan um níu Twitter reikninga
  • Rannís heldur utan um tíu Facebook reikninga
  • Fylgjendur Rannís reikningsins á Facebook eru 3.507
  • Fylgjendur Erasmus+ reikningsins á Facebook eru 5.326
  • Alls sáu 102.800 manns færslur á Facebook síðu Rannís árið 2022
  • Alls sáu 28.511 manns færslur á Instagram síðu Rannís sem er aukning um 1.100% frá árinu 2021
  • Færslur á Facebook síðu Rannís voru samtals 324 á árinu 2022 og rúmlega 17% aukning frá árinu á undan

Myndbönd í kynningarstarfi

Rannís heldur úti Youtube rás þar sem birt eru ýmis myndbönd sem tengjast starfseminni. Erasmus+ verkefnið heldur úti sér Youtube rás þar sem kynntir eru þeir möguleikar sem standa til boða í áætluninni og tengdum verkefnum. Einnig má geta þess að fjölmörg myndbönd eru aðgengileg á Facebook reikningum stofnunarinnar sem og á vef.

Rannís lét útbúa kynningarmyndbönd um COST áætlun ESB og þrjú verkefni sem hafa hlotið styrk úr Horizon Europe, auk þess sem gert var myndband um Nýsköpunarsjóð námsmanna í tilefni af 30 ára afmæli sjóðsins á árinu.

Landskrifstofa Erasmus+ og stoðverkefni áætlunarinnar létu útbúa nokkur myndbönd á árinu. Þar á meðal voru fjögur árangursmyndbönd þátttökuaðila á borð við Dalvíkurskóla, Menntaskólann á Tröllaskaga, SEEDS og Fjölmennt. Sum myndbandanna voru hönnuð af grafískum hönnuði og voru ætluð til að vekja athygli á áætlununum og stoðverkefnunum á upplýsandi hátt en önnur styttri myndbönd voru einnig framleidd af starfsfólki Rannís fyrir samfélagsmiðlaauglýsingar.

Dæmi um kynningarmyndbönd:

Rannís

Erasmus+

Rafrænar útsendingar á póstlista 

Reglulega eru sendar út tilkynningar á póstlista Rannís. Þeim sem eru skráð á póstlistann eru fyrst og fremst sendar áminningar um áhugaverða viðburði en einnig upplýsingar um umsóknarfresti framundan sem og auglýsingar um tilnefningar til verðlauna og fleira.

Hægt er að skrá sig á póstlistann á vefsíðu Rannís og voru áskrifendur árið 2022 tæplega 3.000. Við skráningu á póstlistann er hægt að velja um sjö ólíka markhópa eftir áhugasviðum áskrifenda.

Auðvelt er að skrá sig af póstlistanum og uppfæra upplýsingar til samræmis við persónuverndarlög.

Sendir voru út um 80 markpóstar, í rúmlega 58.000 útsendingum, á póstlistann árið 2022 á mismunandi markhópa; boðsbréf á viðburði, áminningar um umsóknarfrestir, fréttabréf og fleira.

Skráning á póstlista Rannís

Sýnileiki í fjölmiðlum 

Starfsemi Rannís var vel sýnileg í fjölmiðlum árið 2022. Alls var fjallað um Rannís í rúmlega 826 fréttum/greinum. Þar af voru 589 á netmiðlum, 229 í prentmiðlum og átta í sjónvarpi/útvarpi. Það sem helst vekur athygli fjölmiðla eru stórar úthlutanir til ákveðinna verkefna, svo sem úr Tækniþróunarsjóði, Rannsóknasjóði, Erasmus+, Barnamenningarsjóði Íslands, Jafnréttissjóði Íslands og til Listamannalauna. Í tengslum við það beinast þá sjónir fjölmiðla að framúrskarandi verkefnum sem unnið hafa styrki úr sjóðum sem heyra undir Rannís. Einnig vöktu athygli veitingar viðurkenninga á borð við Nýsköpunarverðlaun Íslands og Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands.

Prentgripir, prentað kynningarefni og skýrslur

Eitthvað var gefið út af prentuðu kynningarefni og prentgripum fyrir viðburði og til að kynna sjóði og áætlanir. Prentaðir voru nokkrir bæklingar fyrir markhópa Erasmus+ áætlananna og stoðverkefna, annars vegar fyrir stofnanir á þremur sviðum (leik- og grunnskólar, framhaldsskólar og æskulýðsstarf) sem og bæklingar fyrir ungt fólk um tækifæri erlendis. Einnig voru reglulega birtar auglýsingar í blöðum þar sem vakin var athygli á viðburðum og auglýst eftir umsóknum í innlenda sjóði.

Gefið var út áhrifamat fyrir Tækniþróunarsjóð fyrir árin 2014-2018. Gefin var út heildarskýrsla, Tæplega 140 blaðsíðna en að auki var hönnuð og prentuð 12 síðna samantekt fyrir áhrifamat sjóðsins þar sem lykiltölur og hápunktar voru sett fram á myndrænan hátt.