Sjóðir og úthlutanir

Rannís hefur umsjón með helstu samkeppnissjóðum á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og menningar á Íslandi, auk samstarfsáætlana ESB og norrænna áætlana sem veita styrki til samstarfsverkefna, náms og þjálfunar.

Yfirlitsmynd yfir umfang sjóða sem Rannís hefur umsjón með

Hér fyrir neðan er hægt að sjá yfirlitsmynd sem sýnir úthlutun úr sjóðum og áætlunum í umsýslu Rannís eftir umfangi. Þar fyrir neðan er listi yfir sjóðina í stafrófsröð þar sem hægt er að fá nánari upplýsingar um úthlutanir ársins. Smellið hér til að skoða yfirlit um umfang sjóða sem PDF.

Miðað er við meðalgengi evru 142 og eru tölurnar í töflunni námundaðar að heilli tölu.

Birt með fyrirvara um innsláttarvillur.

Stjörnumerkingar:

* Árangurshlutfall á ekki við.

**Engar úthlutanir 2022.

*** Í hluta umsókna er ekki tilgreint fjármagn og því engin heildarupphæð gefin hér.

Yfirlit yfir umfang sjóða í umsjón Rannís

SJÓÐIR OG ÁÆTLANIR Í UMSÝSLU RANNÍSFjárveiting í m.kr.Sótt um í m.kr.Úthlutað í m.kr.Árangurshlutfall í upphæðumFjöldi innsendra umsóknaFjöldi umsókna sem stóðust forkröfurFjöldi samþykktra umsóknaÁrangurshlutfall innsendra umsókna
Skattfrádráttur rannsóknar- og þróunarverkefna (greitt frá fyrra ári)11.700-12.012-58558553291%
Rannsóknasjóður - nýjar umsóknir3.8005.9531.41223,7%3633558223%
Rannsóknasjóður - framhaldsumsóknir---*---*
Tækniþróunarsjóður - nýjar umsóknir3.58016.1823.06319%77177116922%
Tækniþróunarsjóður - framhaldsumsóknir--1.085*--65*
Erasmus+ og European Solidarity Corps***1.822***1.490-1361329570%
Listamannalaun9125.89088415%1.3941.39435425%
Innviðasjóður54392253758%28281657%
Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku417475417*1.0341.034883*
Nýsköpunarsjóður námsmanna3431.91034318%41341321452%
Markáætlun í tungu og tækni170-170-1313754%
Vinnustaðanámssjóður243-230*269264264*
Loftslagssjóður1006408814%85851214%
Íslenskukennsla fyrir útlendinga17955614626%20201890%
Sviðslistasjóður2051.09318517%2052053216%
Tónlistarsjóður14832313642%30530516955%
Barnamenningarsjóður Íslands1003819224%1061063432%
Nordplus Nordens Sprog991469867%20201680%
Menntarannsóknasjóður**--------
Þróunarsjóður námsgagna552395222%1191192824%
Sprotasjóður631515637%58583662%
Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna452284520%61611423%
Doktorsnemasjóður umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins491004949%55360%
Hljóðritasjóður791906333%23323313357%
Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara - SEF42453987%81817998%
Jafnréttissjóður Íslands**--------
Bókasafnasjóður25402050%1515960%
Íþróttasjóður222902810%1651657646%
Arctic Research and Studies-493878%15151173%
Æskulýðssjóður1048613%3030930%
Rannsóknarsjóður Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar**--------
Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla411--*1121124137%
Skattfrádráttur frá tekjum erlendra sérfræðinga----27127123386%
Samtals23.33935.84922.7846.9126.8993.634
Áætlanir sem úthluta beint til íslenskra aðila án milligöngu Rannís
Horizon Europe--------
Creative Europe--------
Samtals0000
Heildarumfang sjóða og áætlana sem Rannís þjónustar22.7846.9126.8993.634
  • Barnamenningarsjóður Íslands var stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldis Íslands með ályktun Alþingis á hátíðarfundi 18. júlí 2018. Sjóðurinn nýtur árlega 100 milljóna króna framlags til ársins 2023. Hlutverk sjóðsins er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Í starfi sjóðsins er m.a. horft til áherslu menningarstefnu um samstarf stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga, ásamt því markmiði að jafna aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.

    Umsóknarfrestur var til 4. apríl 2022. Alls bárust 106 umsóknir og var sótt um rúmlega 381 milljón króna. Styrkt voru 34 verkefni og heildarupphæð úthlutunarinnar var 92 milljónir króna. Á degi barnsins 29. maí var tilkynnt um úthlutun úr Barnamenningarsjóði Íslands við hátíðlega athöfn í skála Alþingis. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra ávörpuðu fulltrúa verkefnanna af þessu tilefni og Drengjakór Reykjavíkur flutti tónlistaratriði.

    Hæstu styrkina fá Listasafn Árnesinga fyrir verkefnið Smiðjuþræðir, þar sem sex listamenn og hönnuðir vinna með grunnskólanemum í Árnessýslu, og Sviðslistamiðstöð Íslands fyrir verkefnið Sviðslistir fyrir alla, sem er unnið í samvinnu við List fyrir alla.

  • Hlutverk Bókasafnasjóðs samkvæmt VI. kafla bókasafnalaga nr. 150/2012 og reglum Bókasafnasjóðs er að efla starfsemi bókasafna. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn skilgreindar rannsóknir og þróunar- og samstarfsverkefni á sviði bókasafna- og upplýsingamála. Sjóðnum er einnig heimilt að styrkja önnur verkefni til að efla faglegt samstarf bókasafna, m.a. alþjóðleg samstarfsverkefni sem bókasöfn sem falla undir lögin taka þátt í.

    Umsóknarfrestur í Bókasafnasjóð var 15. mars 2022. Sjóðnum bárust samtals 15 umsóknir og sótt var um rúmar 40 milljónir en 20 milljónir voru til úthlutunar. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, tilkynnti úthlutunina við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu 16. júní 2022.

    Háskólinn á Bifröst fékk hæsta styrkinn eða 4,5 milljónir króna, og snýr verkefnið að því að koma á kennsluvef í upplýsingalæsi.

  • Í nóvember var úthlutað í annað sinn úr Doktorsnemasjóði umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Markmið sjóðsins er að styrkja rannsóknir á samspili landnýtingar og loftslags, og eru styrkir veittir til doktorsnema á sviði náttúruvísinda. Alls bárust fimm umsóknir í sjóðinn. Árangurshlutfall var 60% en veittir voru þrír styrkir, einn til þriggja ára, einn til tveggja ára og einn til eins árs. Heildarupphæð styrkveitingar fyrir árið 2022 var 16,7 milljónir króna, en til þriggja ára er heildarupphæð styrkveitingar 49,8 milljónir króna.

  • Sókn í sjóði Erasmus+ og European Solidarity Corps á árinu 2022 var mun meiri en árið áður þó svo að enn megi greina áhrif heimsfaraldursins, sér í lagi í námi og þjálfun erlendis. Alls bárust 136 umsóknir, borið saman við 102 umsóknir 2021.

    Sérstaka athygli vekur mikill áhugi á Erasmus+ aðild, en 27 slíkar umsóknir voru samþykktar í lok árs. Þessi fjöldi bætist við 36 stofnanir og samtök sem fengu aðildina samþykkta árið 2021. Aðildin gildir út tímabilið, eða til ársins 2027, og veitir þeim sem hafa sýnt fram á skýra sýn og verklag í alþjóðamálum tækifæri til að sækja um styrki til náms og þjálfunar með einföldum hætti. Eftirspurn eftir samstarfi við háskóla utan Evrópu var einnig með besta móti, sér í lagi við lönd í Mið-Asíu og Suður-Ameríku. Þá má nefna mikinn áhuga á samstarfsverkefnum, ekki síst á sviði fullorðinsfræðslu og skóla.

    Aldrei hafa fleiri verkefni hlotið styrki í European Solidarity Corps og hægt var að nýta 87% þess fjármagns sem í boði er frá Evrópusambandinu, sem er hærra hlutfall en nokkru sinni fyrr.

  • Hlutverk Hljóðritasjóðs er að efla íslenska hljóðritagerð í tónlist með fjárhagslegum stuðningi við útgáfu hljóðrita. Ráðherra skipar stjórn Hljóðritasjóðs til þriggja ára í senn. Samtónn tilnefnir tvo fulltrúa með þekkingu og reynslu á sviði tónlistarútgáfu eða tónlistarlífs og ráðherra skipar formann sjóðsstjórnar. Veittar voru 63 milljónir króna til 133 verkefna í tveimur úthlutunum. Vegna sérstaks átaks ríkisstjórnar 2022 hafði Hljóðritasjóður alls 79 milljónir króna til umráða á árinu sem er tvöföldun frá fyrri árum. Samtals var sótt um 231 verkefni að heildarupphæð um 190 milljónir króna.

    Fyrri úthlutun í mars 2022:
    Fyrri umsóknarfrestur var 15. mars 2022 og bárust 106 umsóknir. Sótt var um styrki að upphæð 89,5 milljónir króna. Veittar voru 28,7 milljónir króna til 59 verkefna. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, tilkynnti úthlutunina við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu 16. júní 2022.

    Seinni úthlutun í september 2022:

    Seinni umsóknarfrestur var 15. september 2022 og bárust 125 umsóknir. Sótt var um styrki að upphæð 100 milljónir króna. Veittar voru 34,3 milljónir króna til 74 verkefna. Úthlutunin var tilkynnt 22. nóvember 2022.

  • Innviðasjóður bauð upp á fimm styrktegundir: verkefni á vegvísi, tækjakaupastyrk, uppbyggingarstyrk, uppfærslu- og viðhaldsstyrk og aðgengisstyrk.

    Framlag ríkisins til sjóðsins á fjárlögum var 543 m.kr. og hefur aldrei verið hærra.

    Alls bárust 28 umsóknir í Innviðasjóð og voru metnar í fagráði. Alls hlutu 16 verkefni styrk eða 57% umsókna. Sótt var um 922 m.kr. og voru 537 m.kr. veittar eða 58,3% umbeðinnar upphæðar.

    Um 84% styrkupphæðarinnar fara til vegvísaverkefna, en alls bárust fimm umsóknir um verkefni á vegvísi og voru öll verkefnin styrkt. Alls bárust 23 umsóknir í aðrar styrktegundir og hlutu 11 þeirra styrk.

    FagsviðSótt (Fjöldi umsókna)Veitt (Fjöldi umsókna)HlutfallSótt (upphæð í m.kr.)Veitt (upphæð í m.kr.)Hlutfall
    Félagsvísindi11100%1212100%
    Heilbrigðisvísindi10550%48219841%
    Hugvísindi3267%1058985%
    Verkfræði- og náttúruvísindi14857%32323773%
    Samtals281657%92253758%
  • Styrkir til íslenskukennslu fyrir útlendinga eru veittir einu sinni á ári skv. reglugerð sem samþykkt var í árslok 2015 og fer sú úthlutun fram í upphafi árs. Alls bárust 20 styrkumsóknir fyrir námskeiðahald á árinu 2022 en af þeim hlutu 18 styrki. Heildarfjárbeiðnir námu alls 555,5 m.kr. og ákvað ráðuneytið að úthluta samtals 145,5 m.kr. til að halda 453 námskeið fyrir alls 5.247 nemendur. Úthlutun var tilkynnt 23. maí 2022.

  • Á fjárlögum 2022 voru rúmlega 22 m.kr. til ráðstöfunar úr Íþróttasjóði. Auk þess gat sjóðurinn úthlutað fjármunum vegna eldri styrkja sem höfðu ekki verið nýttir. Einn umsóknarfrestur var og bárust 165 umsóknir að upphæð 290 m.kr. Að tillögu íþróttanefndar ákvað mennta- og barnamálaráðherra að úthluta styrkjum til 76 verkefna að upphæð 27,8 m.kr. Þar af fengu 42 verkefni styrki til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana fyrir 13,2 m.kr., 30 fræðslu- og útbreiðsluverkefni fengu styrki upp á 8,8 m.kr. og fjögur verkefni vegna rannsókna í íþróttafræðum upp á 5,7 m.kr. Stjórn Íþróttasjóðs ákvað að þessu sinni að lágmarksstyrkur til verkefna yrði ekki lægri en 250 þúsund. Meðalstyrkur var rúmlega 334.000 kr. sem er hækkun frá fyrra ári, en þetta eru samt sem áður lægstu styrkir sem Rannís veitir.

  • Markmið Jafnréttissjóðs Íslands er að styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu. Sjóðurinn var stofnaður í tilefni af 100 ára kosningarréttarafmæli íslenskra kvenna árið 2015. Tilgreint er í fjármálaáætlun hvaða ár úthlutun eigi að fara fram á hverju fimm ára tímabili en gert er ráð fyrir úthlutun á tveggja ára fresti. Úhlutað var úr sjóðnum árið 2021 og því ekki úthlutað úr sjóðnum á árinu.

  • Í upphaflegri úthlutun úr launasjóðum listamanna árið 2022 voru lögbundin 1.600 mánaðarlaun til úthlutunar. Umsóknarfrestur var til 4. október 2021 og fjöldi umsækjenda var 1.117 (968 einstaklingar og 149 sviðslistahópar). Sótt var um 10.743 mánuði. Úthlutun fengu 236 listamenn og 23 sviðslistahópar. Úthlutun var tilkynnt 13. janúar 2022.

    Aukaúthlutun var úr launasjóði tónlistarflytjenda og sviðslistafólks vegna viðspyrnuaðgerða stjórnvalda. Umsóknarfrestur var til 16. maí 2022 og til úthlutunar 150 mánuðir í launasjóði tónlistarflytjenda og 50 í launasjóði sviðslistafólks. Fjöldi umsækjenda var 277 (221 einstaklingur og 56 sviðslistahópar). Sótt var um 1.255 mánuði. Úthlutun fengu 86 listamenn og 9 sviðslistahópar. Úthlutun var tilkynnt 14. júní 2022.
    Upphæð listamannalauna árið 2022 var 490.920 kr. á mánuði.

    Umsóknarfrestur vegna listamannalauna 2023 var 3. október 2022 og voru lögbundin 1.600 mánaðarlaun til úthlutunar. Fjöldi umsækjenda var 1.083 (972 einstaklingar og 111 sviðslistahópar). Sótt var um 10.108 mánuði. Úthlutun fengu 236 listamenn og 13 sviðslistahópar. Úthlutun var tilkynnt 17. desember 2022.

    Á úthlutunarsíðu listamannalauna er hægt að nálgast nánari tölfræði eftir árum.

  • Í apríl var úthlutað úr Loftslagssjóði. Boðið var upp á tvær styrktegundir, annars vegar styrki til kynningar- og fræðsluverkefna og hins vegar styrki til nýsköpunarverkefna. Sótt var alls um 640 milljónir kr. og veittar rúmar 88 m.kr. Alls bárust 85 gildar umsóknir í Loftslagssjóð og voru 12 þeirra styrktar, eða um 14% umsókna. Alls voru sex kynningar- og fræðsluverkefni styrkt og sex nýsköpunarverkefni. Styrkir eru veittir til eins árs.

  • Markáætlun er opinn samkeppnissjóður sem starfar samkvæmt lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir (nr. 3/2003 með áorðnum breytingum). Áherslur áætlunarinnar eru ákvarðaðar af Vísinda- og tækniráði, en hún er fjármögnuð af háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.

    Markáætlun í tungu og tækni:

    Hlutverk Markáætlunar í tungu og tækni er annars vegar að vernda og efla íslenska tungu og hins vegar að auðvelda nýtingu nýrrar samskiptatækni í íslensku samfélagi, til hagsbóta almenningi, stofnunum og fyrirtækjum. Árið 2022 var úthlutað í annað skipti úr Markáætlun í tungu og tækni. Alls bárust 13 umsóknir í sjóðinn á árinu. Úthlutað var 170 m.kr. til sjö verkefna.

  • Menntarannsóknasjóði var komið á laggirnar á árinu 2021 af Lilju Alfreðsdóttur, þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra. Sjóðurinn styrkir rannsóknir á sviði leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, náms á framhaldsskólastigi og frístundastarfs. Markmið sjóðsins eru að styrkja stoðir hagnýtra menntarannsókna, auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og umbóta í skólastarfi og styðja við framkvæmd menntastefnu til ársins 2030. Enginn umsóknarfrestur var árið 2022.

  • Alls bárust 112 umsóknir um Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla á árinu en umsóknirnar gilda fyrir veturinn 2022-2023. Sóttu 98 framhaldsskólakennarar um orlof í eigin nafni en 14 umsóknir bárust frá skólum fyrir hönd kennara. Nefndin úthlutaði alls 39 stöðugildum til 41 einstaklings, 37 heilum orlofum og fjórum hálfum; 32 stöðugildi fóru til kennara með einstaklingsumsóknir og 7 stöðugildum var úthlutað til kennara í gegnum skólaumsóknir. 28 konur fengu námsorlof að þessu sinni og ellefu karlar. Meðalaldur orlofsþega var 54,6 ár og meðalstarfsaldur þeirra var 24,3 ár. 

  • Árið 2022 barst 371 umsókn um Nordplus styrki og hlutu 305 þeirra brautargengi. Þetta er um það bil 9% hækkun frá árinu áður. Hlutfall úthlutana var 82% sem er afar hátt. Úthlutunarhlutfall fjármagns var 61% sem er einnig frekar hátt. Alls úthlutaði Nordplus rúmlega 9,9 milljónum evra til 2.382 skóla, stofnana, samtaka og fyrirtækja á öllum Norðurlöndunum, Eystrasaltsríkjunum og sjálfsstjórnarsvæðunum Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum. Íslenskar stofnanir stýrðu 22 af þeim verkefnum sem fengu styrk. Því til viðbótar voru 182 verkefni með íslenska samstarfsaðila. Ísland hefur umsjón með Nordplus Norrænu tungumálaáætluninni. Í þann hluta bárust 20 umsóknir sem er tveimur færri en árið áður.

  • Markmið Nýsköpunarsjóðs námsmanna er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunnnámi og námi á meistarastigi við háskóla í sumarvinnu við rannsókna- og þróunarverkefni. Alls bárust 413 umsóknir fyrir 648 háskólanema fyrir umsóknarfrest, sem var 14. febrúar. Sótt var um laun í 1.910 mannmánuði, sem jafngildir rúmlega 649 m.kr. Sjóðurinn úthlutaði um 350 m.kr., sem samsvarar 1.032 mannmánuðum til 346 nemenda í 214 verkefnum. Í töflunni að neðan má sjá árangurshlutföll fyrir sjóðinn.

    Í lok sumars skila nemar inn lokaskýrslu fyrir verkefnið. Í spurningakönnun sem var lögð fyrir nema í lokaskýrslu kom í ljós að þeim hafa boðist atvinnutækifæri í kjölfar vinnu við 38% verkefna.

  • Markmið sjóðsins er að veita styrki til eflingar rannsóknum á korta- og landfræðisögu Íslands og íslenskri bókfræði og stuðla að útgáfu rita um þau efni. Ekki var úthlutað úr sjóðnum á árinu 2022.

  • Rannsóknasjóður bauð upp á fjórar tegundir styrkja: verkefnisstyrki, öndvegisstyrki, nýdoktorsstyrki og doktorsnemastyrki. Umsóknir voru metnar í sjö fagráðum.

    Framlag ríkisins til Rannsóknasjóðs á fjárlögum var 3.800 m.kr. og hefur aldrei verið hærra. Alls bárust 363 umsóknir í Rannsóknasjóð og stóðust 355 forkröfur. Alls hlutu 82 verkefni styrk eða 23,1% umsókna. Sótt var um 5.953 m.kr. og voru 1.412 m.kr. veittar eða 23,7% umbeðinnar upphæðar. Þessar tölur endurspegla styrkupphæð 1. árs styrktra verkefna. Heildarskuldbinding til þriggja ára er 4.048 m.kr.

    Alls bárust 30 umsóknir um öndvegisstyrk og hlutu 6 verkefni styrk og árangurshlutfall var 20%. Umsóknir um verkefnisstyrki voru 171 og voru 43 verkefni styrkt og árangurshlutfall var 25%. Umsóknir um nýdoktorsstyrki voru 51 og 10 styrkir veittir og árangurshlutfall var 19,6%. Umsóknir um doktorsnemastyrki voru 103 og hlutu 23 doktorsnemar styrk og árangurshlutfall var 22,3%.

    Taflan hér fyrir neðan sýnir fjölda umsókna og upphæðir í milljónum króna til nýrra verkefna árið 2022 ásamt árangurshlutfalli.

    Smellið hér fyrir ítarlegri greiningu um umsóknir og úhlutanir til nýrra verkefna úr Rannsóknajsóði árið 2022

    FagráðSótt (Fjöldi umsókna)Veitt (Fjöldi umsókna)HlutfallSótt (upphæð í m.kr.)Veitt (upphæð í m.kr.)Hlutfall
    Raunvísindi og stærðfræði571221,1%104923021,9%
    Verkfræði og tæknivísindi461328,3%65718027,%
    Náttúruvísindi og umhverfisvísindi521223,1%96319420,2%
    Lífvísindi34926,5%61016126,4%
    Klínískar rannsóknir og lýðheilsa34720,6%65718428,0%
    Félagsvísindi og menntavísindi791822,8%115627423,8%
    Hugvísindi og listir531120,8%85818621,7%
    Alls3558223,1%5953141223,7%
  • Venju samkvæmt var boðið upp á tvær tegundir umsókna til Samstarfsnefndar um endurmenntun framhaldsskólakennara á árinu, annars vegar fyrir sumarnámskeið og hins vegar fyrir gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki.

    Sótt var um styrki fyrir 26 sumarnámskeið á árinu og fengu 24 úthlutun. Sótt var um námskeið fyrir alls 870 kennara en í lok árs höfðu 400 kennarar sótt sumarnámskeiðin. Úthlutuð upphæð fyrir sumarnámskeið var 22,8 m.kr. en að loknum uppgjörum var nýtt upphæð rúmlega 17,8 m.kr..

    55 umsóknir bárust um gestafyrirlesara- og ráðstefnustyrki á árinu 2022 frá 19 faggreinafélögum og 13 skólum. Allar voru samþykktar og úthlutun 16,2 m.kr. 26 umsóknir voru vegna ráðstefna en 29 voru vegna gestafyrirlesara.

  • Á árinu 2016 var lögfest frádráttarheimild fyrir erlenda sérfræðinga sem eru ráðnir til starfa hér á landi vegna sérþekkingar sinnar og reynslu. Markmið laganna er að gera fyrirtækjum auðveldara að fá til sín sérfræðinga til að ekki þurfi að fara með viðkomandi starfsemi úr landi. Skilyrði er meðal annars að viðkomandi búi yfir þekkingu eða reynslu sem ekki er fyrir hendi hér á landi, eða einungis í litlum mæli.

    Rannís rekur umsóknakerfi fyrir nefnd sem afgreiðir umsóknirnar og tilkynnir ríkisskattstjóra niðurstöðuna. Alls var afgreidd 271 umsókn á árinu 2022, en frá upphafi hafa borist 852 umsóknir og hefur þeim fjölgað á hverju ári. Á árinu 2022 voru 86% afgreiddra umsókna samþykktar og 14% hafnað. Flestar umsóknir komu frá fyrirtækjum (73%), en einnig frá háskólum (15%) og frá stofnunum, sjúkrahúsum eða sjálfseignarstofnunum (11%). Karlar eru 66% umsækjenda en 34% umsækjenda eru konur. Um 24% umsækjenda eru með doktorspróf, 46% með meistarapróf og 23% með bakkalárpróf. Umsækjendur komu frá 48 löndum. Flestir þeirra, alls 72, eru íslenskir ríkisborgarar sem hafa starfað erlendis. Sem dæmi má líka nefna að 48 umsækjendur voru frá löndum innan ESB, 14 frá Norðurlöndunum, 62 frá Indlandi, 13 frá Bandaríkjunum, 11 frá Bretlandi og 11 frá Frakklandi.

  • Á árinu 2022 voru bráðabirgðaákvæði í lögum nr. 152/2009 um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, sem komu til vegna Covid-19 í maí 2020, framlengd fyrir tímabilið 2022-2023 með þeirri breytingu, að hámark kostnaðar til útreiknings á frádrætti frá álögðum tekjuskatti var lækkað í 1.000 m.kr. hjá hverju fyrirtæki, í stað 1.100 m.kr. á tímabilinu 2020-2021. Önnur bráðabirgðaákvæði voru óbreytt frá 2020, m.a. að nýsköpunarfyrirtæki, sem eru eigendur að rannsókna- og þróunarverkefnum og hlotið hafa staðfestingu Rannís, eiga áfram rétt á frádrætti frá álögðum tekjuskatti árin 2022 og 2023 (til endurgreiðslu 2023 og 2024). Endurgreiðslan nemur 35% af útlögðum kostnaði vegna þessara verkefna í tilviki lítilla og meðalstórra fyrirtækja, en 25% í tilviki stórra fyrirtækja. Hámark kostnaðar til útreiknings á frádrætti frá álögðum tekjuskatti er eftir breytinguna samtals 1.000 m.kr. hjá hverju fyrirtæki. Þar af er áfram heimilt að telja til þeirrar fjárhæðar allt að 200 m.kr. vegna aðkeyptrar rannsókna- eða þróunarvinnu.

    Á árinu 2022 bárust 316 gildar umsóknir um staðfestingu framhaldsverkefna vegna staðfestra verkefna frá fyrra ári, samanborið við 327 verkefni árið áður. Þá bárust 299 umsóknir um staðfestingu nýrra verkefna á árinu 2022, en árið 2021 voru þær 257. Alls bárust því 615 gildar umsóknir um staðfestingu rannsókna- og þróunarverkefna á árinu 2022, samanborið við 584 á árinu 2021 og 552 á árinu 2020. Fjölgun í heildarfjölda umsókna milli áranna 2022 og 2021 er því 5,3%, samanborið við 5,8% fjölgun milli áranna 2021 og 2020. Í fjárlögum ársins 2023 er áætlað að endurgreiðsla vegna þessara verkefna verði um 13.084 m.kr. í nóvember 2023, sem er svipuð upphæð og spá Rannís gerir ráð fyrir.

    Í árslok 2022 var búið að staðfesta 295 framhaldsverkefni af 316 umsóknum ársins, en 14 voru enn í fyrirspurnarferli og boðuð hafði verið höfnun sjö umsókna. Umsækjendum sem hafa fengið boð um höfnum gefst þó kostur á að senda inn rökstuddar athugasemdir gegn þeirri fyrirætlan Rannís innan tveggja vikna.

    Af 299 umsóknum um ný verkefni á árinu var búið að staðfesta 119 í árslok 2022, en 180 voru enn í vinnslu. Þar af voru 83 í fyrirspurnarferli, en fimm höfðu fengið boð um höfnun.

    Rannís áætlaði fyrir fjárlagagerð ársins 2022 að heildarendurgreiðslan yrði um 11.700 m.kr. í nóvember 2022, vegna umsókna á árinu 2021, sem var 12,5% hækkun frá raunendurgreiðslu ársins 2021. Endanleg tala samkvæmt álagningarskrá fyrirtækja sem lá fyrir í byrjun nóvember 2022 var um 12.000 m.kr., sem er vel innan þeirra skekkjumarka ( +/- 10%) sem reikna verður með á þessari áætlun. Skekkjumörk koma til vegna þess að hvorki endanleg niðurstaða um staðfestingu verkefna, né raunkostnaður verkefna, liggur fyrir þegar áætlun fyrir fjárlög næsta árs er gerð. Það getur líka haft áhrif á endurgreiðsluna ef verkefni er með aðra opinbera styrki, t.d. frá Tækniþróunarsjóði.

    Á myndinni hér að neðan má sjá yfirlit yfir spá úr fjárlögum hvers árs í samanburði við endanlegar greiðslur ríkissjóðs vegna skattfrádráttar rannsókna- og þróunarverkefna á tímabilinu 2011 til 2022.

  • Rannís tók við umsýslu Sprotasjóðs í byrjun árs 2022 fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytisins. Sprotasjóður er sameiginlegur sjóður fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og styður við þróun og nýjungar í skólastarfi. Til sjóðsins renna fjármunir sem veittir eru á fjárlögum hverju sinni og árið 2022 var fjárveiting sjóðsins 63 milljónir króna. Það bárust 58 umsóknir til sjóðsins og samanlagðar fjárbeiðnir námu alls 151,3 milljónum króna. Áherslusvið sjóðsins fyrir tímabilið 2022-2023 voru að styðja við innleiðingu menntastefnu í eftirfarandi þáttum:

    • Virkt nemendalýðræði
    • Gagnrýnin hugsun, sköpun og skilningur með áherslu á læsi
    • Nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn

    Sjá nánar í fyrstu aðgerðaáætlun Menntastefnu 2030 á vef mennta- og barnamálaráðuneytisins.

    Styrkir voru veittir til 36 verkefna á árinu 2022 fyrir alls 55,9 m.kr. Meðalstyrkupphæð nam 1,5 m.kr.

  • Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna styrkir eingöngu ritun fræðirita á íslensku, einn opinberra sjóða á Íslandi. Alls barst 61 umsókn í sjóðinn. Sótt var um starfslaun til 465 mánaða eða um 228 m.kr. Til úthlutunar voru um 45 m.kr. og veittir voru 14 styrkir úr sjóðnum. Um 23% umsókna voru styrktar.

  • Í lok árs 2018 voru samþykkt lög með það að markmiði að efla útgáfu bóka á íslensku með því að veita bókaútgefendum tímabundinn stuðning í formi endurgreiðslu. Lögin öðluðust gildi 1. janúar 2019 og verða endurskoðuð í lok árs 2023. Með þessu er ríkissjóður að taka að sér að endurgreiða 25% af endurgreiðsluhæfum kostnaði sem fellur til vegna útgáfu bóka á íslensku. Bókaútgefendur hafa níu mánuði frá útgáfu bókar til að senda inn umsókn.

    Árið 2022 voru afgreiddar 1.034 umsóknir og hefði endurgreiðslan vegna þeirra orðið alls um 474,5 m.kr. Hins vegar var sjóðurinn þurrausinn á haustmánuðum. Eftir að fé sjóðsins var aukið um rúma 41 m.kr. reyndist hægt að afgreiða úthlutun októbermánaðar; það sem út af stóð var greitt út á nýju fjárlagaári. Endanleg útkoma ársins 2022 var því sú að afgreiddar voru 883 umsóknir og nam endurgreiðslan alls um 417 m.kr.

  • Sviðslistasjóður tók til starfa um mitt ár 2020 með lögum nr. 165/2019 um sviðslistir og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra skipaði, samhliða því sviðslistaráð til þriggja ára.

    Í upphaflegri úthlutun úr Sviðslistasjóði árið 2022 voru 160 m.kr. til úthlutunar. Umsóknarfrestur var til 4. október 2021 og fjöldi umsækjenda var 149. Sótt var um ríflega 891 m.kr.í Sviðslistasjóð og að auki 1.789 mánuði í Launasjóð sviðslistafólks. Úthlutun fengu 23 verkefni og fylgdu henni 170 mánuðir úr Launasjóði sviðslistafólks. Úthlutun var tilkynnt 28. febrúar 2022.

    Aukaúthlutun var úr Sviðslistasjóði árið 2022 vegna viðspyrnuaðgerða stjórnvalda. Umsóknarfrestur var til 16. maí 2022 og til úthlutunar voru 25 m.kr.úr Sviðslistasjóði og 50 mánuðir úr Launasjóði sviðslistafólks. Fjöldi umsækjenda var 56 og sótt var um 202 m.kr.og 460 mánuði úr launasjóði. Úthlutun fengu 9 verkefni. Úthlutun var tilkynnt 14. júní 2022.

    Umsóknarfrestur í Sviðslistasjóð vegna 2023 var 3. október 2022. Alls bárust 111 umsóknir og sótt var um ríflega 1.100 m.kr. í Sviðslistasjóð og Launasjóð sviðslistafólks (1.273 mánuðir í Launasjóð listamanna). Úthlutun var tilkynnt 24. janúar 2023.

  • Tónlistarsjóður starfar skv. lögum nr. 76/2004 og er hlutverk sjóðsins að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Menningar og viðskiptaráðherra skipar sjóðnum þriggja manna tónlistarráð til þriggja ára í senn. Tónlistarráð gerir tillögu til ráðherra um úthlutun styrkja úr Tónlistarsjóði.

    Úthlutun Tónlistarsjóðs árið 2022 var 135,7 milljónir króna. Veittir voru styrkir til 169 verkefna. Tveir umsóknarfrestir eru árlega í sjóðnum að hausti 1. nóvember og að vori 2. maí. Vegna úthlutana 2022 bárust 305 umsóknir og sótt var um samtals 323 m.kr.. Umsóknarfrestur í fyrri úthlutun 2023 rann út í nóvember 2022 og barst 131 umsókn.

    Fyrri úthlutun úr Tónlistarsjóði 2022 – umsóknarfrestur 1. nóvember 2021.

    Alls bárust 156 umsóknir. Sótt var um rúmlega 157 m.kr.. Styrkjum að upphæð 64,4 m.kr.var úthlutað til 69 verkefna um allt land. Úthlutun var tilkynnt 28. janúar 2022.

    Seinni úthlutun úr Tónlistarsjóði 2022 – umsóknarfrestur 2. maí 2022.

    Til úthlutunar úr Tónlistarsjóði í síðari úthlutun var rúmlega 71 m.kr.– með 50 m.kr.viðbót stjórnvalda, sem var viðspyrnuúrræði vegna Covid19. Alls bárust 149 umsóknir. Sótt var um rúmlega 166 milljónir króna. Styrkjum að upphæð 71,3 m.kr.var úthlutað til 100 verkefna um allt land. Úthlutun var tilkynnt 15. júní 2022.


    Fyrri úthlutun úr Tónlistarsjóði 2023 – umsóknarfrestur 1. nóvember 2022.

    Alls barst 131 umsókn. Sótt var um rúmlega 141 m.kr.. Styrkjum að upphæð 63,4 m.kr.var úthlutað til 63 verkefna um allt land. Úthlutun var tilkynnt 5. janúar 2023.

  • Tækniþróunarsjóður bauð upp á sjö styrktarflokka á árinu: styrki til hagnýtra rannsóknaverkefna, einkaleyfisstyrki, Fræ, Sprota, Vöxt, Sprett og markaðsstyrki. Sjóðurinn hafði 3.580 m.kr. til umráða samkvæmt fjárlögum sem er aukning frá fyrra ári sem var 3.526 m.kr.

    Alls barst sjóðnum 771 umsókn í alla styrktarflokka og hlutu 169 verkefni styrk eða 22% umsókna. Árangurshlutfall styrktra verkefna af heildarfjölda umsókna hefur aukist frá síðasta ári og fer úr 19% í 22%. Sótt var um 16.182 m.kr. og voru 3.063 m.kr. veittar eða tæplega 18,9% umbeðinnar upphæðar. Verkefni geta sótt um stuðning frá einu til þriggja ára í senn. Auk þess styrkir sjóðurinn íslenska þátttakendur í sex alþjóðlegum verkefnum þannig að heildarupphæðin er rúmlega 3,3 milljarðar króna. Á árinu var gengið frá framhaldssamningi við 65 verkefni upp á rúmar 1.085 m.kr.

    Sjóðurinn tekur þátt í Eurostars-3 áætlun Evrópusambandsins og fengu sex verkefni stuðning í þeirri áætlun á árinu. Sjóðurinn tekur jafnframt þátt í BlueBio Cofund ERA-Net, sem fjallar um lífhagkerfi sjávar og ferskvatns, Geothermica Cofund ERA-Net sem er evrópskt samstarfsnet á sviði jarðorku, M-ERA sem er á sviði efnistækni, Sustainable Blue Economy Partnership (SBEP), Clean Energy Transition Partnership (CETP) og Nordic Energy Research (NER).

    StyrktarflokkurSóttVeittÁrangurshlutfall
    Hagnýt rannsóknaverkefni40923%
    Fræ/þróunarfræ1283427%
    Sproti2324118%
    Vöxtur1662917%
    Markaðsstyrkur972627%
    Samtals66313921%
    77116922%
  • Fjárveiting til Vinnustaðanámssjóðs var 242,6 m.kr. á fjárlögum 2022. Þegar umsýslukostnaður hafði verið dreginn frá var heildarupphæð til úthlutunar 230 m.kr. Rannís hélt áfram samstarfi við Iðuna fræðslusetur og Rafmennt um tiltekna þætti í framkvæmd styrkveitinganna. Fjöldi umsókna var 269 og af þeim voru 264 metnar gildar. Sótt var í heildina um 34.023 vikur. Eftir yfirferð Rannís, Rafmenntar og Iðunnar voru úthlutaðar vikur 29.566. Upphæð til úthlutunar var 230 m.kr. og var henni skipt niður á úthlutaðar vikur. Styrkur á hverja viku var því 7.779 kr.

  • Fjárveiting til Þróunarsjóðs námsgagna nam tæplega 55 m.kr. á árinu 2022. Stjórn sjóðsins ákvað að skipta styrkumsóknunum í tvennt líkt og fyrri ár. Áfram var hægt að sækja um almennan þróunarstyrk fyrir allt að 2 m.kr. en einnig var hægt að sækja um þróunar- og útgáfustyrk fyrir allt að 4 m.kr. Ákveðið var að veita að hámarki tveimur umsóknum þennan hámarksstyrk, að skilyrðum settum. Sjóðnum bárust 119 umsóknir og námu samanlagðar fjárbeiðnir um 239,3 m.kr.

    Forgangsatriði sjóðsins fyrir árið 2022 voru þrjú:

    1. Námsefni sem styður við skapandi kennsluhætti á sviði list- og verkgreina.
    2. Námsefni sem styður við náms- og starfsfræðslu.
    3. Námsefni sem miðar að markvissri eflingu íslensks orðaforða og hugtakaskilnings í ýmsum námsgreinum.

    Sérstaklega var horft til hvort námsefnið kæmi til með að styðjast við stafræna tækni, Menntastefnu 2030 og hversu aðgengilegt námsefnið yrði nemendum.

    Allar 119 umsóknir sem bárust sjóðnum féllu undir eitt af þremur áhersluatriðum sjóðsins. Styrkir voru veittir til 28 verkefna á árinu 2022 fyrir alls 52 m.kr. Meðalstyrkupphæð nam 2,0 m.kr.

  • Fjárveiting til Æskulýðssjóðs var 9,8 m.kr. á fjárlögum 2022. Einnig hefur sjóðsstjórnin heimild til að úthluta ósóttum styrkjum fyrri ára. Umsóknarfrestir voru tveir, 15. febrúar og 17. október. Alls bárust 30 umsóknir sem er 17 umsóknum færri en á síðasta ári. Upphæðin sem sótt var um var 47,7 milljónir sem var rúmlega 7 milljónum meira en árið 2021. Styrkt voru 9 verkefni að upphæð um 6,3 m.kr. sem er lækkun frá fyrra ári. Skýringin er að stjórn Æskulýðssjóðs taldi gæði umsókna ekki vera það mikil að það réttlætti að úthluta til fleiri verkefna. Taka verður tillit til að mörg æskulýðsfélög eiga enn ónýtta styrki frá fyrri árum sem þau hafa fengið frest til að nýta. Meðalstyrkur var um 70.000 kr. á verkefni sem er svipað og árið áður.