Viðburðir skipa stóran sess
Viðburðir af ýmsu tagi skipa stóran sess í starfsemi Rannís. Er þeim ætlað að styðja við kynningarstarf á verkefnum og sjóðum sem Rannís hefur umsjón með og gera áhrif þekkingarsköpunar sýnileg. Rannís á einnig þátt í að hvetja vísinda- og fræðafólk til dáða með viðurkenningum af ýmsu tagi.

Vísindavaka og viðurkenning fyrir vísindamiðlun
Vísindavaka var haldin í 1. október 2022 og í tengslum við hana var afhent viðurkenning fyrir vísindamiðlun.
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands
Nýsköpunarverðlaunforseta Íslands voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum þann 10. febrúar, 2022.
Nýsköpunarþing og Nýsköpunarverðlaun Íslands
Nýsköpunarþing og afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands fór fram í Grósku, 20. september 2022.
Rannsóknaþing
Rannsóknaþing Rannís var haldið á Hilton Reykjavik Nordica þann 24. nóvember 2022.
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs voru ahent við hátíðlega athöfn á Rannsóknaþingi Rannís, 24. nóvember 2022.
Vorfundur Tækniþróunarsjóðs
Vorfundur Tækniþróunarsjóðs fór fram á Hótel Borg þann 14. júní 2022.
Uppskeruhátíð Tækniþróunarsjóðs
Haustfundur og uppskeruhátíð Tækniþróunarsjóðs var haldin í Grósku þann 12. desember 2022.
Alþjóðlegar tengslaráðstefnur
Landskrifstofa Erasmus+ hélt á árinu þrjá fjölþjóðlega viðburði fyrir sína markhópa.
Vaxtarsprotinn
Vaxtarsprotinn var haldin í Flórunni í Grasagarðinum í Laugardal um miðjan september 2022.
Aðrir viðburðir
Rannís tók þátt í ýmsum viðburðum á árinu. Meðal annars á Grænlandi, á Hringborði norðurslóða, og á UTmessunni.