Starfsemi og skipulag

Hlutverk Rannís

Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensk samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu.

Íslenskt landslag, mosagrónar fjallshlíðar

Rannís styður þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum, ásamt því að greina og kynna áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónusta undirbúning vísinda- og tæknistefnu.

Rannís hefur umsjón með helstu samkeppnissjóðum á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og menningar á Íslandi, auk samstarfsáætlana ESB og norrænna áætlana sem veita styrki til samstarfsverkefna, náms og þjálfunar. Á meðal sjóðanna eru Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður, sem eru tveir stærstu samkeppnissjóðir hér á landi, Listamannalaun, Loftslagssjóður og Jafnréttissjóður Íslands sem eru dæmi um smærri sjóði og Horizon Europe og Erasmus+ sem eru stærstu ESB áætlanirnar. Samskiptanetið er stórt, en skólar, stofnanir, einstaklingar, samtök og fyrirtæki auk stjórnsýslunnar tilheyra viðskiptavinahópi Rannís.

Yfirlit yfir helstu samkeppnissjóði og sérverkefni sem Rannís hefur umsjón með:

Innlendir sjóðir

  • Barnamenningarsjóður Íslands
  • Bókasafnssjóður
  • Doktorsnemasjóður umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins
  • Hljóðritasjóður
  • Innviðasjóður
  • Íslenskukennsla fyrir útlendinga
  • Íþróttasjóður
  • Jafnréttissjóður Íslands
  • Listamannalaun
  • Loftslagssjóður
  • Markáætlun í tungu og tækni
  • Markáætlun um samfélagslegar áskoranir
  • Námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla
  • Nýsköpunarsjóður námsmanna
  • Rannsóknarsjóður Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar
  • Rannsóknasjóður
  • Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara – SEF
  • Skattfrádráttur frá tekjum erlendra sérfræðinga
  • Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna
  • Sóknarstyrkir
  • Sprotasjóður
  • Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna
  • Stuðningur við útgáfu bóka á Íslandi
  • Sviðslistasjóður
  • Tónlistarsjóður
  • Tækniþróunarsjóður
  • Vinnustaðanámssjóður
  • Þróunarsjóður námsgagna
  • Æskulýðssjóður

Alþjóðastarf

  • Arctic Research and Studies – Norðurslóðafræði
  • COST
  • Creative Europe
  • Digital Europe
  • Enterprise Europe Network
  • Erasmus+  
  • Sérverkefni Erasmus+ 
    - EAAL
    - ECVET
    - EPALE
    - eTwinning
    - Eurodesk
    - Euroguidance
    - Higher Education Reform
    - Kynningar á möguleikum fyrir ungt fólk
  • European Solidarity Corps
  • Eurostars 
  • Euraxess
  • Evrópska tungumálamerkið
  • Horizon Europe
  • Landstenglaverkefni Horizon Europe
    - WIDERA.NET
    - MSCA-net
    - HNN 3.0
    - Net4SocietyHE
    - Seren 5
    - NCP Ideal-ist
    - Greenet
    - Care4Bio
    - Industry
    - MISSIONS NCP
    - NE4NCPs
    - ERA talent
  • Horizon Europe Partnership
    - ERA Blue Bio
    - GEOTHERMICA
    - M-ERA.NET 
    - Noreface
    - CHANSE – Samvinna hug- og félagsvísinda í Evrópu
    - CETP Clean Energy Transition Partnership
    - ERA4Health Partnership
    - DUT Driving Urban Transitions Partnership
    - SBEP Sustainable Blue Economy Partnership
    - THCS Transforming Health Care Partnership
  • Life áætlun
    - NCP NET4LIFE
  • Norrænt samstarf
    - Nordplus
    - NordForsk
    - NOS-HS
    - NOS-M
    - NOS-N
    - Rannsóknasetur Margrétar II Danadrottningar og frú Vigdísar Finnbogadóttur um haf, loftslag og samfélag
  • Jules Verne
  • Tungumálamiðstöðin í Graz
  • Uppbyggingarsjóður EES

Skipurit Rannís

Fjögur svið Rannís og ný skrifstofa forstöðumanns

Starfsemi Rannís skiptist í tvö fagsvið; rannsókna- og nýsköpunarsvið og mennta- og menningarsvið. Rekstrarsvið og greiningar- og hugbúnaðarsvið ganga þvert á fagsviðin og styðja við starfsemi þeirra.

Sameiginlegt markmið sviðanna er að efla samstarf stjórnvalda og hagsmunaaðila við undirbúning og framkvæmd opinberrar vísinda- og tæknistefnu og styðja við rannsóknir og nýsköpun, menntun, menningu og þróun mannauðs.

Á árinu var stofnuð skrifstofa forstöðumanns og verkefni á sviði mannauðs-, samskipta- og kynningarmála færð þangað frá rekstrarsviði. Utan forstöðumanns eru starfsgildi á skrifstofu forstöðumanns þrjú talsins; mannauðs- og samskiptastjóri, kynningarfulltrúi Rannís og vefstjóri.

Mynd sem sýnir skipurrit Rannís fyrir árið 2022

Vísinda- og tækniráð

Vísinda- og tækniráð hefur það hlutverk að efla vísindarannsóknir, vísindamenntun og tækniþróun í landinu í því skyni að treysta stoðir íslenskrar menningar og auka samkeppnishæfni atvinnulífsins.

Forsætisráðherra er formaður ráðsins en þar sitja einnig háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, matvælaráðherra, heilbrigðisráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Ráðið markar stefnu stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum til þriggja ára í senn. Umfjöllun ráðsins á hvoru sviði um sig er undirbúin af starfsnefndum ráðsins, vísindanefnd og tækninefnd. Vísinda- og tækniráð starfar skv. lögum nr. 2/2003.

Vísinda- og tækninefndir hittust þrisvar sinnum á sameiginlegum fundum. Vísinda- og tækniráð fundaði einu sinni á árinu. Í lok árs samþykkti Alþingi lög nr. 137/2022 um Vísinda- og nýsköpunarráð sem taka gildi 1. apríl 2023. Verður þá Vísinda- og tækniráð lagt niður í þeirri mynd sem það hefur starfað sl. 20 ár. Í stað þess kemur annars vegar ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun sem mun samræma stefnu stjórnvalda og birta stefnu stjórnvalda í tvennu lagi: framtíðarsýn til tíu ára sem endurskoðuð skal á fjögurra ára fresti og aðgerðaáætlun til tveggja ára í senn. Hins vegar sjálfstætt Vísinda- og nýsköpunarráð sem er ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun og ráðherra sem fer með málefni vísinda og nýsköpunar til ráðgjafar.

Gangverk ú úri, tannhjól úr málmi

Rannís í hnotskurn

Lykiltölur starfseminnar árið 2022

0

innlendir sjóðir

0

erlendar samstarfsáætlanir

0

umsóknir

0

Verkefnastyrkir

0

einstaklingar sem njóta góðs af starfinu

0

milljarða króna stuðningur

0

starfsmenn í fimm starfseiningum

0

matsmanna og stjórnarmanna unnu í fagráðskerfinu