Haustfundur Tækniþróunarsjóðs
Tækniþróunarsjóður heldur hélt haustfund þar sem málefni nýsköpunarumhverfisins á Íslandi eru rædd með tilliti til stuðnings stjórnvalda við nýsköpun og þróun. Þá er úthlutun Tækniþróunarsjóðs tilkynnt á fundinum og fagnað með styrkþegum.
Fimmtudaginn 11. desember var haustfundur Tækniþróunarsjóðs haldinn og fór fundurinn fram í Grósku ásamt því að vera í beinu streymi. Á fundinum var sagt frá stefnumótun og framtíðarhorfum Tækniþróunasjóðs, Dafna – samstarfi Klaks og Tækniþróunarsjóðs, og reynslusögu frá norska nýsköpunarumhverfinu um stuðning við lítil og meðalstór nýsköpunarfyrirtæki í Noregi. Erindi á fundinum fluttu Guðrún Inga Ingólfsdóttir, stjórnarformaður Tækniþróunarsjóðs, Freyr Friðfinnsson, verkefnastjóri hjá KLAK, og Eva Langslet, yfirmaður Evrópuverkefna hjá Innovasjon Norge. Fundarstjóri var Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís.
Þá kynnti Guðrún Inga haustúthlutun sjóðsins og af því tilefni var tekin hópmynd af styrkþegum. Auk þess voru styrkþegar frá haustúthlutun 2024 og vorúthlutun 2025 heiðruð með myndbandi með yfirliti yfir styrkþega í ljósi þess að hvorki var haldinn haustfundur 2024 né vorfundur 2025.











