Viðurkenningar og verðlaun

Framúrskarandi fólk og verkefni

Rannís skipuleggur veitingu viðurkenninga og verðlauna á ýmsum sviðum í samstarfi við tiltekna sjóði og áætlanir sem og aðrar stofnanir og fyrirtæki í íslensku samfélagi.

  • Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs

    Dr. Jón Emil Guðmundsson, lektor í stjarneðlisfræði við Háskóla Íslands.

  • Nýsköpunarverðlaun Íslands

    Hefring Marine fyrir þróun og markaðssetningu snjallsiglingakerfis sem nýtir rauntímagögn til að bæta öryggi, eldsneytisnýtingu og rekstur báta og smærri skipa.

  • Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands

    Valdimar Sveinsson, nemi í læknisfræði við Háskóla Íslands, fyrir verkefnið Lífupplýsingafræðileg greining á kælisvari frumna

  • Viðurkenning fyrir Vísindamiðlun

    Vísindaskóli unga fólksins, við Háskólann á Akureyri.

  • Vaxtarsprotinn

    Aldin Dynamics, fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis.

  • Evrópsku nýsköpunarverðlaunin í kennslu og eTwinning viðurkenningar

    Landskrifstofa Erasmus+ leitast við að vekja athygli á verkefnum sem hafa náð sérlega góðum árangri og eru líkleg til að veita öðrum innan mennta- og æskulýðssamfélagsins innblástur, ýmist í tengslum við ákveðinn málaflokk eða markhóp.