Vísindavaka fagnar 20 ára afmæli
Rannís skipuleggur Vísindavöku á Íslandi í samstarfi við íslenska háskóla og stofnanir en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu síðustu helgina í september undir heitinu Researchers' Night.

Vísindavaka fagnaði 20 ára afmæli á árinu en hún var fyrst haldin árið 2005 á Listasafni Reykjavíkur. Vísindavaka var haldin laugardaginn 27. september í Laugardalshöll en Vísindavaka er langstærsti viðburðurinn sem Rannís skipuleggur og stærsti vísindamiðlunarviðburður á Íslandi. Rannís skipuleggur Vísindavöku á Íslandi í samstarfi við íslenska háskóla og stofnanir en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu síðustu helgina í september undir heitinu Researchers’ Night.
Markmið Vísindavöku er að stuðla að aukinni vísindamiðlun til almennings og vekja áhuga, ekki síst hjá ungu kynslóðinni, á heimi vísindanna, kynna manneskjurnar á bak við vísindin og vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi rannsókna- og vísindastarfs í íslensku samfélagi. Allar vísindagreinar eru kynntar á Vísindavöku, hugvísindi jafnt sem raunvísindi. Á Vísindavöku kynnti vísindafólk frá íslensku háskólunum, auk helstu stofnana og fyrirtækja á sviði rannsókna- og nýsköpunar, fjölmörg rannsóknaverkefni fyrir almenningi á lifandi og skemmtilegan hátt. Gestir Vísindavöku voru um 6.500.
Gestir fengu að skoða og prófa ýmis tæki og tól sem notuð eru við rannsóknir, skoða afurðir verkefna og spjalla við vísindafólkið.
Í tilefni af 20 ára afmæli Vísindavöku var boðið upp á örfyrirlestra á sal, Vísindaspuna í samstarfi við spunahópinn Improv-Ísland auk þess sem Vísindavaka, í samstarfi við hlaðvarpið Skuggavaldið, bauð gestum að vera áhorfendur á sal við upptöku á þætti hlaðvarpsins sem fjallaði um samsæriskenningar um að Jörðin sé flöt. Þá var gestum einnig boðið upp á afmælisköku í tilefni dagsins.
































