Viðburðir

Uppskeruhátíð Uppbyggingarsjóðs EES

Uppskeruhátíð Uppbyggingarsjóðs EES fór fram á Hótel Reykjavík Natura þann 29. apríl og sóttu viðburðinn tæplega 80 gestir. Markmið hans var að fagna þeim árangri sem náðst hefur í samstarfi Íslands við viðtökuríki sjóðsins á tímabilinu 2014–2021 og líta jafnframt til framtíðar í alþjóðlegu samstarfi.

Viðburðurinn var skipulagður af utanríkisráðuneytinu, Rannís og Umhverfis- og orkustofnun. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, fjölluðu um þátttöku Íslands í Uppbyggingarsjóði EES og mikilvægi sjóðsins fyrir alþjóðlegt samstarf og þekkingarmiðlun.

Á dagskránni voru kynningar á verkefnum íslenskra aðila á sviðum rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningar. Þar tóku til máls Auðbjörg Björnsdóttir frá Háskólanum á Akureyri, Ágústa Kristófersdóttir frá Þjóðminjasafni Íslands og Egill Árni Guðnason frá ÍSOR. Þá var fjallað um verkefni tengd orkumálum og nýsköpun með þátttöku Gests Péturssonar og Baldurs Péturssonar frá Umhverfis- og orkustofnun, Hafsteins Helgasonar frá EFLU, Esterar S. Halldórsdóttur og Alicju Wiktoriu Stoklosa frá GEORG, Óskars Einarssonar frá Verkís, Baldvins Björns Haraldssonar frá BBA Legal og Sigurðar Atla Jónssonar frá Arctic Green Energy Europe, meðal annarra.

Um miðbik viðburðarins flutti tónlistarmaðurinn Pétur Ben nokkur lög fyrir gesti og skapaði þannig notalegt andrúmsloft.

Borgar Þór Einarsson, varaframkvæmdastjóri skrifstofu Uppbyggingarsjóðs EES, kynnti einnig nýtt sjóðstímabil og horfur í áframhaldandi samstarfi. Fundarstjóri var Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður hjá Rannís.

Myndir frá uppskeruhátíð