Mannauður

Faglegur og líflegur vinnustaður

Rannís er líflegur og faglegur vinnustaður þar sem starfað er eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og samstarf

Starfsfólk Rannís

Í árslok 2025 unnu 72 hjá Rannís í 70,15 stöðugildum að forstöðumanni meðtöldum. Jafnmargt starfsfólk var í árslok 2025 og árið áður en stöðugildum fjölgaði um 1,45. Fimm starfsmenn voru ráðnir til Rannís vegna starfsloka, afleysinga og aukins umfangs verkefna, tveir á rannsókna- og nýsköpunarsvið og þrír á mennta- og menningarsvið. Á skrifstofu IASC var samningur við framkvæmdastjóra IASC endurnýjaður til nokkurra ára. Alls hættu fimm starfsmenn á árinu en þrír þeirra höfðu verið í tímabundnum verkefnum. Eitthvað var um breytingar á starfshlutfalli hjá starfsfólki.

Dreifing mannauðs

Dreifing mannauðs á milli sviðaFj. starfsm.Fj. stg.Kvk. stg.Kk. stg.
Skrifstofa forstöðumanns5532
Rannsókna- og nýsköpunarsvið2827,4016,4011
Mennta- og menningarsvið2322,2516,256
Rekstrarsvið66,255,50,75
Greiningar- og hugbúnaðarsvið7743
IASC skrifstofa32,2520,25
Samtals7270,1547,1523

Stöðugildi

Fjöldi starfsfólks og stöðugilda á greiningar- og hugbúnaðarsviði hélst óbreyttur á milli ára. Í árslok 2025 voru sjö starfsmenn á greiningar- og hugbúnaðarsviði í jafn mörgum stöðugildum. Breytingar urðu á starfsmannafjölda og stöðugildum á öðrum sviðum Rannís sem tengdust flestar skipulagsbreytingum, afleysingum og starfslokum. Á skrifstofu forstöðumanns voru fimm starfsmenn í fimm stöðugildum í lok árs og var það fjölgun um tvo starfsmenn og tvö stöðugildi. Þessir tveir starfsmenn, sem eru hluti af formlegu kynningarteymi, færðust frá fagsviðunum yfir á skrifstofu forstöðumanns sem heldur utan um málaflokkinn. Á rannsókna- og nýsköpunarsviði voru 28 starfsmenn í 27,40 stöðugildum sem var fækkun um einn starfsmann og fjölgun um 0,15 stöðugildi. Á mennta- og menningarsviði hélst fjöldi starfsfólks óbreyttur, eða 23 starfsmenn, en fjölgun var um 0,40 stöðugildi. Á rekstrarsviði voru sex starfsmenn í 6,25 stöðugildum í árslok og var það fækkun um einn starfsmann og 1,0 stöðugildi. Á skrifstofu IASC hélst fjöldi starfsfólks óbreyttur og fækkaði um 0,1 stöðugildi.

Af 70,15 stöðugildum í árslok 2025 voru sérfræðingar í 61,65 stöðugildum, fulltrúar í þremur stöðugildum, starfsfólk í tímavinnu í 0,5 stöðugildum, sviðsstjórar í fjórum stöðugildum og forstöðumaður í einu stöðugildi.

Lífaldur starfsfólks og aldursdreifing

Meðalaldur starfsfólks í árslok 2025 var 49,9 ár. Flest starfsfólk, eða 27,77%, er á aldursbilinu 51–60 ára, 25% er á aldrinum 41–50 ára, 23,61% er á aldrinum 31–40 ára, 22,22% er á aldrinum 61 árs og eldri, og 1,39% 30 ára og yngri.

Aldursdreifing

Heild30 ára og yngri31-40 ára41-50 ára51-60 ára61-70 ára
72117182016
100%1,39%23,61%25%27,77%22,22%

Fræðsla og vinnuvernd innan Rannís

Rannís leggur áherslu á að bjóða starfsfólki sínu fjölbreytta fræðslu til að auka skilvirkni og gæði starfsins ásamt því að bæta árangur og starfsánægju. Á árinu sótti starfsfólk námskeið og aflaði sér þekkingar utan stofnunarinnar í tengslum við starfsþróunaráætlun á vegum Rannís. Árið 2025 var einkum lögð áhersla á rafræn námskeið og fræðsluerindi innanhúss. Vinnuhópur um gervigreind innan Rannís bauð starfsfólki á fræðsluerindið Gervigreind: hugvekja og hagnýt nálgun. Þar fór Gísli Ragnar Guðmundsson, ráðgjafi hjá KPMG Íslandi, yfir helstu grunnatriði gervigreindar og innleiðingu hennar hjá stofnunum. Miriam Petra Ómarsóttir Awad, jafnréttisfulltrúi Rannís og inngildingarfulltrúi landskrifstofu Erasmsus+, hélt hugvekju um mikilvægi þess að loftslagsbarátta taki kynjasjónarmið til greina.

Meðal námskeiða má nefna notkun á GoPro Foris þar sem lagaumhverfi Rannís var kynnt, verklag í skjalamálum, viðurkenndir vistunarstaðir, GoPro Foris málaskrá og lokun mála. Auk þess var starfsfólki boðið upp á einstaklingsfræðslu í skjalamálum sem margir nýttu sér. Í boði voru opnar kynningar á efnisstefnu Ísland.is. Einnig var reglubundin kennsla á Teams, Sharepoint, OneDrive, kerfi í Orranum og aðgangsstýringarkerfið. Nýliðafræðsla var haldin eftir þörfum fyrir nýtt starfsfólk í upphafi starfs.

Vinnuvernd kemur reglulega og tekur út stöðuna hjá starfsfólki Rannís til að vinna að bættu vinnuumhverfi og góðri líðan starfsfólks og draga úr mögulegu líkamlegu álagi. Í byrjun árs 2025 var gerð úttekt á aðstöðu starfsfólks. Það fékk leiðbeiningar og fræðslu á vinnustöð um vinnutækni og stillingar stóls, skrifborðs, tölvubúnaðar o.s.frv. Úttektin hófst á fyrirlestri iðjuþjálfa um líkamsbeitingu, helstu áhættuþætti stoðkerfisvandamála og ráð til að koma í veg fyrir slík vandamál.

Rannís stendur einnig reglulega fyrir opnum fræðsluerindum, ráðstefnum, kynningum og fundum.

Alls voru fimm starfsmannafundir og fimm fréttafundir haldnir á árinu, bæði í rafheimum og raunheimum. Fréttafundir eru óformlegir morgunverðarfundir en þar getur starfsfólk kvatt sér hljóðs og sagt frá því sem er á döfinni og á erindi til annars starfsfólks.

Heilsudagar

Heilsudagar voru haldnir vikuna 1.–5. september en Rannís leggur áherslu á að skapa góðan vinnustað þar sem starfsfólki líður vel og eru árlegir heilsudagar liður í því.

Á heilsudögum var boðið upp á fyrirlesturinn Fullkomin streita sem fjallar um samspil streitu, fullkomnunaráráttu og kulnunar. Þær Helga Lára Haarde og Hildur Vilhelmsdóttir, ráðgjafar frá Attentus, héldu utan um fræðsluna ásamt Kristínu Þóru Haraldsdóttur leikkonu sem deildi sinni persónulegu reynslu. Hin einna sanna Halldóra Björnsdóttir, umsjónarmaður Morgunleikfimi Rásar 1, mætti í Rannís og leiddi morgunleikfimi í eigin persónu. Einnig var boðið upp á badmintonferð í TBR þar sem spilaðir voru tvíliðaleikir undir leiðsögn badmintonþjálfara. HAFÍS, sjósundfélag starfsfólks Rannís, bauð samstarfsfólki í sjósundtíma í Nauthólsvík. Eva Einarsdóttir leiddi nærandi heilsujóga og starfsfólki var einnig boðið að taka þátt í gönguhópi. Til að toppa stemninguna voru heilsudrykkir töfraðir fram á morgnana og að venju voru vegan réttir daglega í boði í mötuneytinu.

Námsleyfi

Alls var 582 klst. varið í námsleyfi starfsfólks. Fimm starfsmenn sóttu um formlegt námsleyfi. Fjögur fengu formlegt leyfi til að leggja stund á háskólanám árið 2025, eitt í níu vikur, eitt í fimm vikur og tvö til að sækja tvo áfanga hvort á háskólastigi, í samráði við sviðsstjóra.

Ráðningar

Á árinu voru tveir sérfræðingar ráðnir á mennta- og menningarsvið. Var það annars vegar starfsmaður í æskulýðshluta Erasmus+ og í European Solidarity Corps og hins vegar starfsmaður til að hafa umsjón með innlendum sjóðum og erlendum samstarfsverkefnum á sviði menntamála. Á rannsókna- og nýsköpunarsviði var sérfræðingi bætt við í nýsköpunarteymið. Samningur við framkvæmdastjóra IASC var endurnýjaður til nokkurra ára. Einnig var eitthvað um tímabundnar ráðningar vegna aukins umfangs verkefna og afleysinga.

Starfsfólk í árslok 2025

  • Aðalheiður Jónsdóttir
  • Andrés Pétursson
  • Arnþór Ævarsson
  • Atli Arnarson
  • Auður Rán Þorgeirsdóttir
  • Ágúst H. Ingþórsson
  • Álfrún G. Guðrúnardóttir
  • Árni Sigurðsson
  • Berglind Fanndal Káradóttir
  • Birna Vala Eyjólfsdóttir
  • Björg María Oddsdóttir
  • Björn Ágúst Björnsson
  • Brynja Jónsdóttir
  • Bylgja Valtýsdóttir
  • Böðvar Nielsen Sigurðarson
  • Davíð Fjölnir Ármannsson
  • Davíð Þór Lúðvíksson
  • Egill Þór Níelsson
  • Elísabet M. Andrésdóttir
  • Elvar Helgason
  • Embla Sól Þórólfsdóttir (leyfi)
  • Ester Jenný Birgisdóttir
  • Eva Einarsdóttir
  • Evgenía Kristín Mikaelsdóttir
  • Eydís Inga Valsdóttir
  • Eyjólfur Eyfells
  • Eyrún Sigurðardóttir
  • Fanney Reynisdóttir
  • Friðmey Jónsdóttir
  • Gauti Kjartan Gíslason
  • Gróa María Svandís Sigvaldadóttir
  • Guðmundur Ingi Markússon
  • Harpa Sif Arnarsdóttir
  • Helga Dagný Árnadóttir
  • Helga Snævarr Kristjánsdóttir
  • Herdís Þorgrímsdóttir
  • Hulda Hrafnkelsdóttir
  • Ingunn Helga Bjarnadóttir
  • Jón Svanur Jóhannsson
  • Júlíana Grigorova Tzankova
  • Katrín Jónsdóttir
  • Kolbrún Bjargmundsdóttir
  • Kolfinna Tómasdóttir
  • Lára Aðalsteinsdóttir
  • Lísa Kristín Gunnarsdóttir
  • Margrét Jóhannsdóttir
  • Miriam Petra Ómarsdóttir Awad
  • Mjöll Waldorff
  • Óli Örn Atlason
  • Óskar Eggert Óskarsson
  • Ragnhildur G. Gunnarsdóttir
  • Ragnhildur Zoëga
  • Rúna Vigdís Guðmarsdóttir
  • Sandra Berg Cepero
  • Sigríður Þórunn Grétarsdóttir
  • Sigríður M. Vigfúsdóttir
  • Sigrún Ólafsdóttir
  • Sigurður Óli Sigurðsson
  • Sigurður Snæbjörnsson
  • Sigþrúður Guðnadóttir
  • Skúli Leifsson
  • Sólveig Sigurðardóttir
  • Svandís Ósk Símonardóttir (leyfi)
  • Svandís Unnur Sigurðardóttir
  • Tanja Teresa Leifsdóttir
  • Vigfús Eyjólfsson
  • Þorgerður Eva Björnsdóttir
  • Ægir Örn Ingvason
  • Ægir Þór Þórsson

Starfsfólk Rannís hjá IASC

  • Gerlis Ursula Fugmann
  • Kolbrún Reynisdóttir
  • Federica Eyja Scarpa