Viðburðir

Vísindakakó

Á viðburðinum Vísindakakói gefst gestum tækifæri á að hitta aðila úr vísindasamfélaginu, taka óformlegt spjall um vísindarannsóknir og spyrja ótal spurninga um allt sem tengist rannsóknum og vísindum.

Vísindakakó var viðburðaröð fyrir forvitna krakka sem vilja eiga beint samtal við vvísindafólk, fræðast um rannsóknir og hvernig það er að starfa í vísindum. Viðburðaröðin hlaut styrk frá Vísindum og velferð: Styrktarsjóði Sigrúnar og Þorsteins árið 2023 til undirbúnings og framkvæmdar á Vísindakakói en verkefninu stýrðu Davíð Fjölnir Ármannsson, kynningarfulltrúi Rannís, og Martin Jónas B. Swift, verkefnastjóri STEM greina við Nýmennt á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.

Viðburðir Vísindakakós fóru fram á bókasöfnum landsins þar sem gestum var boðið upp á samtal við vísindafólk yfir heitu kakói, kleinum og kexi. Viðburðaröðin samanstóð af tíu viðburðum veturinn 2024–2025 og voru fimm viðburðir haldnir vorið 2025:

  • 25. janúar á Borgarbókasafninu í Kringlunni
  • 15. febrúar á Bókasafni Hafnarfjarðar
  • 8. mars á Amtsbókasafninu á Akureyri
  • 8. mars á Borgarbókasafninu í Spönginni
  • 29. mars á Bókasafni Mosfellsbæjar

Samtals voru gestir á þessum fimm viðburðum um 200 talsins og var meirihluti gesta á hverjum stað að sækja slíkan viðburð í fyrsta skipti.

Hver viðburður var tileinkaður rannsóknum og vísindastörfum þess vísindafólks sem tók þátt í hverjum viðburði Vísindakakós. Fjallað var um Pop-kultúr og samfélagsmiðla, frumulíffræði, gervigreind og tækni, stoðtækjafræði og íþróttafræði.

Myndir frá viðburðum Vísindakakós