Viðburðir

Viðburðarík starfsemi

Fjölbreyttir viðburðir skipa stóran sess í starfsemi Rannís. Þeim er ætlað að styðja kynningarstarf tengdu verkefnum og sjóðum, sem Rannís hefur umsjón með, og gera áhrif þekkingarsköpunar sýnileg. Viðburðir eru einnig uppskeruhátíðir sjóðanna sem lyfta upp verkefnum styrkþega.

Rannís skipulagði og tók þátt í fjölmörgum viðburðum, stórum sem smáum, á árinu.

Vísindavaka fagnar 20 ára afmæli

Rannís skipuleggur Vísindavöku á Íslandi í samstarfi við íslenska háskóla og stofnanir en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu síðustu helgina í september undir heitinu Researchers’ Night.

Lesa meira

Rannsóknaþing

Rannís skipuleggur Rannsóknaþing þar sem tekin eru fyrir stefnumál á sviði rannsókna og nýsköpunar. Á Rannsóknaþingi er úthlutun Rannsóknasjóðs tilkynnt auk þess sem Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs eru veitt því vísindafólki sem þykir hafa skarað fram úr snemma á ferlinum og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi.

Lesa meira

Nýsköpunarþing

Nýsköpunarþing er haldið árlega sem samstarfsverkefni Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarsjóðsins Kríu og Hugverkastofunnar.

Lesa meira

Ársfundur Erasmus+ Evrópusamstarf í stafrænum heimi

Í tilefni Evrópuárs um stafræna borgaravitund í menntun efndi landskrifstofa Erasmus+ til ársfundar, á Evrópudeginum 9. maí í Eddu, undir yfirskriftinni Evrópusamstarf í stafrænum heimi – Fræðsla til framtíðar.

Lesa meira

Uppskeruhátíð Uppbyggingarsjóðs EES

Uppskeruhátíð Uppbyggingarsjóðs EES fór fram á Hóteli Reykjavík Natura þann 29. apríl og sóttu viðburðinn tæplega 80 gestir.

Lesa meira

Haustfundur Tækniþróunarsjóðs

Haustfundur Tækniþróunarsjóðs fór fram 11. desember 2026.

Lesa meira

Vísindakakó

Á viðburðinum Vísindakakói gefst gestum tækifæri á að hitta aðila úr vísindasamfélaginu, taka óformlegt spjall um vísindarannsóknir og spyrja ótal spurninga um allt sem tengist rannsóknum og vísindum.

Lesa meira

Aðrir viðburðir

Fjölmargir aðrir viðburðir fóru fram á árinu sem voru skipulagðir af starfsfólki Rannís eða voru haldnir með þátttöku þess, þar sem starfsemin og tækifærin, sem eru í boði hjá Rannís, voru kynnt.

  • NOS ráðstefna Nordforsk

    Rannís tekur þátt í þremur norrænum samstarfsnefndum á vegum rannsóknaráða Norðurlandanna undir hatti Nordforsk: NOS-HS á sviði hug- og félagsvísinda, NOS-N í raunvísindum og náttúruvísindum og NOS-M sem er samstarfsnefnd í heilbrigðisvísindum.

  • Eru evrópskir háskólar í fararbroddi? – Ávinningur af þátttöku íslenskra háskóla í evrópskum háskólanetum

    Þann 14. október 2025 var málþing haldið í Norræna húsinu undir yfirskriftinni Eru evrópskir háskólar í fararbroddi? – Ávinningur af þátttöku íslenskra háskóla í evrópskum háskólanetum. Um 100 manns sótti viðburðinn á staðnum og rúmlega 100 manns fylgdist með í streymi.

  • Evrópski tungumáladagurinn

    Rannís stóð fyrir viðburði í tilefni Evrópska tungumáladagsins í samstarfi við STÍL, Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands og Vigdísarstofnun fimmtudaginn 25. september 2025 í Veröld – húsi Vigdísar.

  • Hringborð Norðurslóða

    Rannís tók virkan þátt í Hringborði Norðurslóða (e. Arctic Circle Assembly) ráðstefnunni sem haldin var í Hörpu.

  • Nýsköpunarvikan

    Rannís og Tækniþróunarsjóður tóku þátt í Nýsköpunarvikunni (e. Iceland Innovation Week) sem meðal annars fór fram í Kolaportinu.

  • Mín framtíð

    Rannís tók þátt í Minni framtíð sem fram fór í Laugardalshöll.

  • Alþjóðleg tengslaráðstefna um Erasmus+ námsdvalir nemenda

    Dagana 6.–8. október skipulagði Landskrifstofa Erasmus+ tengslaráðstefnu sem fjallaði um lengri námsdvalir nemenda í skólahlutanum (Long-Term Learning Mobility of School Pupils).