Viðburðir

Nýsköpunarþing

Umfjöllunarefni Nýsköpunarþings hverju sinni tengist rannsóknum, þróun og markaðsmálum. Umræðuefnið er ávallt valið með það í huga að ýta undir skilning manna á samspili vísinda, tækni og þekkingar annars vegar og vöruframleiðslu og markaðsstarfs hins vegar. Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt á Nýsköpunarþingi.

Nýsköpunarþing er haldið árlega í samstarfi Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarsjóðsins Kríu og Hugverkastofunnar. Umfjöllunarefni Nýsköpunarþings hverju sinni tengist rannsóknum, þróun og markaðsmálum. Umræðuefnið er ávallt valið með það í huga að ýta undir skilning manna á samspili vísinda, tækni og þekkingar, annars vegar, og vöruframleiðslu og markaðsstarfs, hins vegar. Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt á Nýsköpunarþingi.

Nýsköpunarþing 2025 var haldið í Grósku, fimmtudaginn 30. október, undir yfirskriftinni
„Ísland í stóru myndinni“. Á þinginu var sjónum beint að hindrunum og tækifærum á erlendum mörkuðum með hliðsjón af þróun alþjóðamála og áhrifa þeirra á íslensk nýsköpunarfyrirtæki.

Erindi á þinginu fluttu Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Svanhildur Hólm, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, og Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar. Á þinginu voru einnig pallborðsumræður um Ísland í stóru myndinni og þar tóku þátt Tanya Zarov, aðstoðarforstjóri Alvotech, Erla Skúladóttir, stjórnarformaður Lauf Cycles (Nýsköpunarfyrirtæki ársins 2021), Sveinn Sölvason, forstjóri og framkvæmdastjóri Embla Medical og Lóa Fatou Einarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Good Good. Fundarstjóri var Freyr Eyjólfsson.

Í lok Nýsköpunarþings voru Nýsköpunarverðlaun Íslands 2025 veitt fyrirtækinu Hefring Marine.

Myndir frá Nýsköpunarþingi