Viðburðir

Rannsóknaþing

Rannís skipuleggur Rannsóknaþing þar sem tekin eru fyrir stefnumál á sviði rannsókna og nýsköpunar. Á Rannsóknaþingi er úthlutun Rannsóknasjóðs kynnt og Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs veitt því vísindafólki sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi.

Rannsóknaþing 2025 var haldið með öðru sniði en undanfarin ár en úthlutunarfundur Rannsóknasjóðs, sem haldinn hafði verið síðustu tvö ár á undan, var sameinaður Rannsóknaþingi.

Á Rannsóknaþingi eru sem fyrr tekin fyrir stefnumál á sviði rannsókna og nýsköpunar auk þess sem úthlutun Rannsóknasjóðs fyrir viðkomandi styrkár er tilkynnt og Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs eru veitt, eins og hefð er fyrir.

Yfirskrift rannsóknaþings þetta árið var „Hingað og lengra: Vísindi á heimsmælikvarða“ og fór þingið fram fimmtudaginn 16. janúar á Hótel Reykjavík Natura.

Á þinginu var meðal annars fjallað um hvernig Ísland getur sem best stutt háskóla og rannsóknastofnanir í því að sækja og reka alþjóðlega samkeppnisstyrki. Á þinginu flutti Inger Midtkandal, sérfræðingur hjá norska rannsóknaráðinu og landstengiliður Horizon Europe í Noregi, erindi auk David Loic Daniel Reimer, prófessors við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands, og Ernu Sif Arnardóttur, dósents við verkfræði- og tölvunarfræðideildir Háskólans í Reykjavík. Ármann Gylfason, meðlimur í stjórn Rannsóknasjóðs, kynnti úthlutun sjóðsins fyrir styrkárið 2025.

Í lok Rannsóknaþings veitti Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Jóni Emil Guðmundssyni, lektor í stjarneðlisfræði við Háskóla Íslands, Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs 2025.

Myndir frá Rannsóknaþingi